Í gegnum árin hefur það af og til valdið miklum úlfaþyt í samfélaginu þegar starfsmenn fjármálafyrirtækja fá kauprétt í félögum sem þeir starfa hjá. Hefur það nánast alltaf verið ávísun á mikinn hagnað þar sem gengið í slíkum samningum er hagstætt miðað við þróun á mörkuðum. Þannig fengu starfsmenn Kaupþings kauprétt í bankanum í desember 2006 sem þeir máttu nýta nú í febrúar að einum þriðja hluta. Hins vegar er ólíklegt að nokkur þeirra hafi nýtt sér þennan kauprétt. Gengið bréfanna í samningnum í ár var 830. Það er ekki gáfulegt að kaupa Kaupþingsbréf á því gengi þegar gengi bankans í febrúar var nær 700. Það eru sem sagt fleiri en stóru hákarlarnir sem verða fyrir barðinu á lækkunum þessar vikurnar. Fólkið á gólfinu missir líka spón úr aski sínum.
Samruni?Í nokkurn tíma hefur verið rætt um mögulega samruna á fjármálamarkaði og þá helst horft til smærri fyrirtækja í þeim geira. Glöggir samsæriskenningasmiðir voru hins vegar ekki lengi að sjá út „líklegan“ samruna þegar Straumur-Burðarás frestaði aðalfundi sínum frá 3. apríl til 15. apríl og gefa lítið fyrir þær skýringar að yfirmenn bankans hafi ekki getað mætt á fyrri dagsetninguna sökum einhverra anna. Aðalfundur Landsbankans, sem raunar var fyrstur bankanna til að birta uppgjör í janúar, er nefnilega á dagskrá 23. apríl, og er bankinn þá síðastur í hópnum til að halda aðalfund. Væntanlega liggur þó fyrir 7. apríl hvort á dagskránni verður yfirtaka á Straumi, en þá verða tillögur til aðalfundar teknar fyrir í stjórn bankans.