Man. United kemst ekki bakdyramegin inn í Meistaradeildina Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. desember 2011 15:11 Wayne Rooney. Mynd/Nordic Photos/Getty
Svissneska knattspyrnusambandið hefur orðið við beiðni UEFA og er búið að taka 36 stig af Sion-liðinu fyrir að tefla fram ólöglegum leikmönnum. UEFA hafði kastað Sion út úr Evrópudeildinni og var búið að hóta því að gera hið sama við önnur svissnesk lið, myndi svissneska sambandið ekki refsa Sion. Sion var með 31 stig út úr fyrstu 18 leikjum sínum en eftir að liðið missti 36 stig er það nú eitt á botni svissnesku úrvalsdeildarinnar með mínum fimm stig. Það gæti því orðið afar strembið fyrir Sion menn að halda sér í deildinni. Hefði svissneska sambandið ekki tekið á þessu máli hefði UEFA rekið öll svissnesku liðin út úr Evrópukeppnunum en þar á meðal var lið Basel sem hafði betur í baráttunni við Manchester United um sæti í sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Manchester United sá því von um að komast í bakdyramegin inn í Meistaradeildina en nú er endanlega orðið ljóst að lærisveinar Sir Alex Ferguson verða að sætta sig við það að keppa í Evrópudeildinni eftir áramót. Sion hefur staðið í deilum við Alþjóða knattspyrnusambandið eftir að félagið braut reglur FIFA og keypti sex leikmenn þegar félagið var í félagsskiptabanni. Sion notaði fimm leikmannanna í undankeppni Evrópudeildarinnar og var því dæmt úr leik. Forráðamenn svissneska liðsins fóru með málið fyrir almenna dómstóla sem vakti litla hrifningu hjá forráðamönnum UEFA og FIFA.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Átján ára skíðakona lést á æfingu Sport Sjáðu vélina sem „saumar saman“ Laugardalsvöllinn Íslenski boltinn Sara ætlar að komast á heimsleikana í gegnum Afríku Sport „Hér verður enginn í hættu, það er loforð“ Íslenski boltinn Frederik Schram aftur til Vals: „Enginn svekktari en Ömmi sjálfur“ Íslenski boltinn Læknir Maradona í réttarsalnum: Hann var mjög erfiður sjúklingur Fótbolti Ósáttur Ólafur á förum Íslenski boltinn Kostulegt viðtal bræðranna eftir sigurinn Íslenski boltinn Stórstjarnan vildi ekki missa af vitnisburði móður sinnar Sport Aldrei selst fleiri miðar á heimaleik hjá Álftanesi Körfubolti Fleiri fréttir Ancelotti skammaði Endrick fyrir trúðslæti inn á vellinum Læknir Maradona í réttarsalnum: Hann var mjög erfiður sjúklingur Fótboltafélagið inn á borð hjá dýraeftilitinu og matvælastofnun Frederik Schram aftur til Vals: „Enginn svekktari en Ömmi sjálfur“ Sjáðu vélina sem „saumar saman“ Laugardalsvöllinn Rikki G mjög forvitinn um dularfullu dolluna hjá Mosfellingum „Hér verður enginn í hættu, það er loforð“ Mörkin úr Bestu deildinni: Vítið sem felldi Víkinga og markaveisla Eyjamanna Frestað vegna andláts sjúkraþjálfarans Kidd kominn í eigendahóp Everton „Beindu þeim inn á miðju og átu þær þar“ „Menn voru að spila af gleði og þá gerast góðir hlutir“ Ósáttur Ólafur á förum Kostulegt viðtal bræðranna eftir sigurinn Uppgjörið: Afturelding - Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Mosfellinga kominn í hús Hlynur Freyr tryggði Brommapojkarna stig Kolbeinn vildi rautt á Arnór Ingva í dramatískum sigri Stuðningsmenn Vestra úti í horni vegna kröfu um aðskilnað Uppgjörið: ÍBV - Fram 3-1 | Verðskuldaður sigur Eyjamanna Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Sjáðu hetjumark Höskuldar, kvartettinn í Kaplakrika og öll hin frá því í gær Hættir eftir langan tíma og Orri fær nýjan þjálfara Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar Öruggt hjá Milan og þrennudraumur Inter úr sögunni Sjá meira