Fótbolti

Hættir eftir langan tíma og Orri fær nýjan þjálfara

Sindri Sverrisson skrifar
Orri Steinn Óskarsson er að ljúka sinni fyrstu leiktíð hjá Real Sociedad og þeirri einu þar undir stjórn Imanol Alguacil.
Orri Steinn Óskarsson er að ljúka sinni fyrstu leiktíð hjá Real Sociedad og þeirri einu þar undir stjórn Imanol Alguacil. Samsett/Getty

Imanol Alguaciol greindi Orra Steini Óskarssyni og öðrum leikmönnum Real Sociedad frá því í morgun að hann yrði ekki lengur þjálfari spænska liðsins eftir tíambilið sem senn lýkur.

Imanol ætlar að hætta í sumar þegar samningur hans rennur út og mun þá hafa stýrt Real Sociedad í sex og hálft ár, með afar góðum árangri. Ekki er ljóst hver tekur við af honum.

Upp úr stendur bikarmeistaratitill og fimm leiktíðir í Evrópukeppnum. Eftir tapið gegn Alavés í gærkvöld gæti reynst erfitt að bæta við leiktíð í Evrópukeppni á næstu leiktíð en Real Sociedad er þó í 9. sæti með 42 stig og aðeins tveimur stigum frá næsta Evrópusæti, þegar liðið á fimm leiki eftir.

Imanol sagði fyrir nokkrum mánuðum að hann ætlaði að gefa sér tíma fram í lok apríl til að ákveða hvort að hann myndi framlengja samning sinn við Real Sociedad. Nú hefur hann tekið sína ákvörðun.

Liðið hefur leikið 334 leiki undir hans stjórn og hafa aðeins tveir þjálfarar stýrt liðinu lengur, þeir Benito Díaz (391 leikur) og John Benjamin Toschack (386 leikir).

Landsliðsfyrirliðinn Orri hefur verið lærisveinn Imanols í vetur, eftir að Real Sociedad keypti hann frá FC Kaupmannahöfn fyrir metverð síðasta sumar.

Orri hefur ítrekað verið í hlutverki varamanns í vetur en spilað níu deildarleiki í byrjunarliði og alls komið við sögu í 23 deildarleikjum til þessa. Í þeim hefur hann skorað þrjú mörk. Hann skoraði fjögur mörk í níu leikjum fyrir liðið í Evrópudeildinni, þar sem það komst í 16-liða úrslit en féll úr leik gegn Manchester United.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×