

Dýr sparnaður
Mér er bæði ljúft og skylt að biðja Paul Nikolov og aðra forláts sem ég kann að hafa sært með orðalagi mínu. Geri ég það hér með. Okkur ber öllum að varast alhæfingar og ég efa ekki að slíkt hafi hent mig í því stutta sjónvarpsspjalli sem vísað er til.
Í ljósi þess að umræða um þessi mál mun að líkindum fara vaxandi á næstunni, tel ég rétt að halda hér stuttlega til haga megininntaki þeirra sjónarmiða er ég tel skipta máli. Þá vil ég undirstrika mikilvægi þess að unnt sé að ræða alþjóðlega glæpastarfsemi án þess að vera sakaður um kynþáttafordóma.
Hvers vegna nefndi ég glæpagengi frá Búlgaríu og Rúmeníu sérstaklega? Jú, sökum breytinga er taka gildi 1. jan n.k. og varða þessar þjóðir af einhverjum ástæðum sem hljóta að vera gildar. Það er heldur ekkert launungarmál að af öllum glæpagengjum Evrópuþjóða eru gengi umræddra landa talin hvað skæðust um þessar mundir. Það er því e.t.v. lán í óláni, svo fáránlega sem það kann að hljóma, að glæpagengi annarra Evrópuþjóða hafa þegar sammælst um að skipta íslensku undirheimakökunni milli sín, hvað sem síðar kann að verða.
Flestir ættu að geta sammælst um að vopnað tugmilljóna króna rán í miðborg Reykjavíkur gefi fullt tilefni til vitundarvakningar, umræðna og viðbragða um þróun og eðli glæpastarfsemi á Íslandi. Góðu fréttirnar eru a.m.k. þær að þýfið úr því ráni, sem hér er til umræðu, hefur fundist og eftirlitsmyndavélum á Laugavegi og víðar verður nú fjölgað til muna.
Fjölsóttasta svæði Íslands er miðborg Reykjavíkur. Hagkerfi miðborgarinnar nemur hátt í þrjú hundruð milljörðum króna.
Hér skulu ítrekuð eindregin tilmæli um að a.m.k. tveir fótgangandi lögreglumenn séu ávallt sýnilegir í miðborginni líkt og í öðrum miðborgum, rétt eins og Reykvíkingar áttu að venjast til skamms tíma.
Jafnframt skal hér opinberlega skorað á innanríkisráðuneytið að tryggja hærri fjárframlög til landamæraeftirlits með hliðsjón af vaxandi tíðni erlendra glæpagengja, hvaðan sem þau koma. Það virðist hafa gleymst við hina umdeildu ákvarðanatöku um Schengen samninginn á sínum tíma að slíkt alþjóðlegt samstarf kallar á umtalsverða fjármuni. Um 700.000 einstaklingar af erlendu þjóðerni sækja Ísland heim árlega sem þýðir að umtalsverð tekjuaukning fyrir ríkissjóð hefur átt sér stað vegna erlendra gesta frá því að Schengen samningurinn var undirritaður. Skyldi aukning gjalda vegna þessa málaflokks hafa verið í samræmi við þessa miklu aukningu tekna? Hér gildir einu hvort breytingarnar um næstu áramót tengjast Evrópusambandinu eða Schengen.
Það verður líka að teljast harla undarlegt að við brottför frá landinu starfar stór hópur fólks við að gegnumlýsa mann hátt og lágt, skólausan og fáklæddan, en við komu til landsins eru í besta falli tveir syfjulegir landamæraverðir að gjóa á mann því auganu sem betur er vakandi.
Fyrstu krónu skattgreiðandans skal varið til að verja hann árásum eða innrásum. Sé öryggistilfinningu almennings á götum úti ábótavant, ber að endurskoða forgangsröðun ríkisins.
Allar þjóðir heims þurfa hver með sínum hætti að standa vaktina gegn glæpasamtökum sem fara markvisst á milli þjóðlanda í leit að verðmætum, ógnandi öryggi almennings. Ísland virðist auðveld bráð í augum slíkra hópa – enn sem komið er.
Við skulum einnig gæta þess að gera skýran greinarmun á umræðum um tilteknar þjóðir og umræðum um glæpagengi tiltekinna þjóða. Þó að ímynd Íslands hafi beðið hnekki eftir fjármálabrölt nokkurra einstaklinga í útlöndum, dettur fáum heilvita mönnum í hug að fordæma þjóðina sem heild fyrir slíkt. Sama gildir um aðrar þjóðir. Mafíustarfsemi á Ítalíu er til dæmis löngu alræmd en engu að síður sækir fjöldi Íslendinga þessa ágætu þjóð heim á hverju ári og hefur á henni mjög góðan þokka.
Við skulum forðast alhæfingar og gæta háttvísi og tillitssemi í skoðanaskiptum okkar um þessi viðkvæmu mál. Hins vegar verður að ræða þau af hreinskilni og hispursleysi og síst af öllu reyna að þagga þau niður á tímum vaxandi glæpastarfsemi á Íslandi.
Skoðun

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar