Þórður Þorgeirsson og Flákur frá Blesastöðum höfnuðu í efsta sæti með einkunnina 8,81 í milliriðli A-flokks á Landsmóti hestamanna í Víðidal í dag.
Þeir félagar voru einnig efstir í forkeppninni á þriðjudag og til alls vísir í A-úrslitunum sem fram fara á sunnudag. Sigurbjörn Bárðarson og Stakkur frá Halldórsstöðum urðu í öðru sæti með 8,73 stig.
Sjö efstu gæðingarnir tryggðu sér sæti í A-úrslitum en sæti 8-15 gáfu sæti í B-úrslitum sem fram fara fyrir hádegi á sunnudag. Efsta sætið í B-úrslitum gefur áttunda og síðasta sætið inn í A-úrslitin.
1. Þórður Þorgeirsson Fláki frá Blesastöðum 1A 8,81
2. Sigurbjörn Bárðarson Stakkur frá Halldórsstöðum 8,73
3. Sigurður Sigurðarson Fróði frá Staðartungu 8,71
4. Atli Guðmundsson Sálmur frá Halakoti 8,58
5. Sigursteinn Sumarliðason Grunnur frá Grund II 8,58
6. Stefán Friðgeirsson Dagur frá Strandarhöfði 8,58
7. Sigurður Vignir Matthíasson Hringur frá Fossi 8,56
8. Mette Mannseth Hnokki frá Þúfum 8,56
9. Reynir Örn Pálmason Greifi frá Holtsmúla 1 8,55
10. Hinrik Bragason Sturla frá Hafsteinsstöðum 8,55
11. Sólon Morthens Frægur frá Flekkudal 8,54
12. Sigurður Vignir Matthíasson Máttur frá Leirubakka 8,53
13. Hans Þór Hilmarsson Lotta frá Hellu 8,53
14. Berglind Rósa Guðmundsdóttir Nói frá Garðsá 8,49
15. Þorvar Þorsteinsson Stáli frá Ytri-Bægisá I 8,49
16. Súsanna Ólafsdóttir Óttar frá Hvítárholti 8,48
17. Eyjólfur Þorsteinsson Kraftur frá Efri-Þverá 8,47
18. Tryggvi Björnsson Kafteinn frá Kommu 8,46
19. Eyjólfur Þorsteinsson Máni frá Hvoli 8,44
20. Magnús Bragi Magnússon Vafi frá Ysta-Mói 8,43
21. Mette Mannseth Seiður frá Flugumýri II 8,41
22. Guðmundur Björgvinsson Gustur frá Gýgjarhóli 8,39
23. Guðmundur Björgvinsson Gjöll frá Skíðbakka III 8,38
24. Vignir Siggeirsson Þröstur frá Hvammi 8,38
25. Elvar Þormarsson Skuggi frá Strandarhjáleigu 8,32
26. Þórdís Erla Gunnarsdóttir Trostan frá Auðsholtshjáleigu 8,27
27. Höskuldur Jónsson Svali frá Sámsstöðum 8,20
28. Viðar Ingólfsson Már frá Feti 8,12
29. Guðmundur Björgvinsson Snævar Þór frá Eystra-Fróðholti 8,06
30. Atli Guðmundsson Frakkur frá Langholti 0,00
Fláki frá Blesastöðum 1A efstur í milliriðli A-flokks
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið





Stuðningsmenn Vestra úti í horni vegna kröfu um aðskilnað
Íslenski boltinn


„Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“
Íslenski boltinn



Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða
Enski boltinn