
Atvinnuvegafjárfesting tekur vel við sér
Á árinu 2013 verður hagvöxtur 2,7% samkvæmt spánni. Einkaneysla og fjárfesting knýja vöxtinn áfram. Spá Hagstofunnar staðfestir enn þann viðsnúning sem orðinn er í hagkerfinu líkt og hinir ýmsu hagvísar hafa gefið til kynna að undanförnu.
Eins og áður gerir Hagstofan í sinni þjóðhagsspá fyrst og fremst ráð fyrir fjárfestingarverkefnum sem þegar hafa verið ákveðin eða teljast mjög líkleg. Fréttir síðustu vikna bera hins vegar með sér að ýmis fleiri verkefni eru á teikniborðinu og gætu orðið að veruleika á næstu árum. Ef af þeim verður munu þau leiða til hærra fjárfestingarstigs og meiri hagvaxtar. Það gæti því reynst mikilvægt að viðbótarverkefni raðist skynsamlega upp og dreifist yfir tíma svo ekki skapist hætta á þensluástandi á allra næstu árum.
Þrjár tegundir fjárfestingarTæpast verður lengur deilt um efnahagsbatann, jafn augljós og hann er orðinn á mörgum sviðum. Eftir sem áður heyrist oft að fjárfestingarstigið sé of lágt og atvinnuvegafjárfestingin í sögulegu lágmarki. En er atvinnuvegafjárfesting í raun eins lág og margir vilja vera láta? Til að átta sig á þessu er rétt að skipta fjárfestingu upp í þrennt líkt og Hagstofan gerir:
(I) Atvinnuvegafjárfesting
(II) Íbúðarfjárfesting
(III) Fjárfesting hins opinbera
Eins og við var að búast minnkaði íbúðafjárfesting hratt eftir hrunið. Það var dæmt til að gerast þar sem bóla hafði myndast eftir óeðlilega miklar byggingar mörg ár í röð. Íbúðafjárfesting er enn lág og undir meðaltali síðustu ára og verður væntanlega nokkurn tíma að komast aftur á jafnvægisstig þó svo hún sé farin að aukast á ný. Fjárfesting hins opinbera minnkaði einnig mikið eftir hrunið enda gaf staða ríkissjóðs enga möguleika á öðru. Það var því skynsamleg ráðstöfun að draga úr fjárfestingu hins opinbera strax eftir hrun. Hallinn á rekstri ríkisins og sveitarfélaga hefur minnkað og staðan batnað. Fjárfesting hins opinbera er þó enn undir meðaltali og verður væntanlega svo uns hin opinberu fjármál eru orðin fyllilega sjálfbær á ný.
Fjárfesting atvinnuveganna eykst hrattAtvinnuvegafjárfestingin er mikilvæg fyrir undirliggjandi verðmætasköpun í landinu. Þegar skoðað er meðaltal atvinnuvegafjárfestingar frá árinu 1990 sést að það var að meðaltali 12,2% af landsframleiðslu frá árinu 1990 til og með ársins 2012. Samkvæmt áætlun Hagstofunnar verður atvinnuvegafjárfesting tæplega 11% af landsframleiðslu árið 2012. Sem sagt, atvinnuvegafjárfestingin hefur hressilega tekið við sér og er nú þegar komin nærri meðaltalinu frá 1990 og yfir því sem hún var á tímabilinu 1990-1995 þegar langvinn stöðnun ríkti í efnahagslífinu. Þá var atvinnuvegafjárfesting einnig minni en nú árið 2002. Það stefnir því í að atvinnuvegafjárfestingin, sem jafnframt er einn mikilvægasti drifkraftur efnahagsþróunarinnar, verði komin yfir meðaltal síðustu tveggja áratuga strax á öðru til þriðja ári uppsveiflunnar. Það er gott veganesti inn í framtíðina.
Skoðun

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar