
Hvenær á að byrja í leikskóla?
Borgin er þó í sífellu að greina fjárhagsleg áhrif breytinga á þjónustu borgarinnar, fyrir t.d. langtímaáætlanagerð. Það þýðir ekki sjálfkrafa að borgin hafi yfir þeim fjármunum að ráða. Samþykkt var snemma árs 2012 að ráðast í greiningu á margvíslegum áhrifum þess að börn hefji leikskólagöngu eins árs gömul, í stað þess að miða við árið sem þau verða tveggja ára. Niðurstöðurnar leiddu margt forvitnilegt í ljós; kostnað upp á 1,2 milljarða án framkvæmdakostnaðar við nýbyggingar, þörf á fjölgun starfsfólks um rúmlega 200 manns, áhrif á dagforeldrakerfið sem myndi óhjákvæmilega minnka, húsnæðisþörf og margt fleira. Verkefnið var unnið með aðferðafræði kynjaðrar fjárhagsáætlunargerðar. En verkefnið var ekki síst áríðandi til að borgarstjórn gæti svarað með raunsæjum hætti spurningunni sem allir foreldrar hafa skoðun á: Hvenær eiga börn að byrja í leikskóla?
Helmingur foreldra velur leikskóla fyrr
Í opnu bréfi Sigrúnar má lesa að hún telji að það sé eingöngu fjárhagslegt sjónarmið sem ráði því að foreldrar kjósa heldur leikskóla en dagforeldra. Það er rangt. Í viðhorfskönnunum skólayfirvalda í Reykjavík kemur ítrekað fram að um helmingur foreldra kýs heldur leikskóla en dagforeldra. Foreldrar tiltaka ýmsar ástæður fyrir því, kostnaður er þar á meðal. En foreldrar tilgreina einnig aðstöðu, örvun, öryggi, frí- og veikindadaga dagforeldra, stærri barnahóp og margt, margt fleira. Þegar foreldrar eru spurðir hvort þeir kysu frekar leikskóla en dagforeldri þrátt fyrir að þeir greiddu svipað gjald og hjá dagforeldri myndu samt sem áður 37% foreldra kjósa leikskóla. Þeir sem svara kannski eru 36% foreldra en fjórðungi fannst það ekki koma til greina.
Ánægja með dagforeldra
Þessar niðurstöður eru enginn áfellisdómur yfir þjónustu dagforeldra, foreldrar eru ánægðir með þeirra góða starf, umönnun og þjónustu. Ekki má líta framhjá því að um 50% foreldra kjósa heldur þeirra umönnun en að börn þeirra byrji ung á leikskóla. Fyrir því liggja margar ástæður, heimilislegri aðstæður, ein manneskja sér um barnið, samskipti við dagforeldrið skora hátt og færri börn í barnahópi eru meðal annarra ástæðna sem foreldrar tilgreina. Þetta dregur fram í dagsljósið að foreldrar hafa mismunandi skoðanir á því hvenær börn eiga að byrja í leikskóla. Það er okkar að taka mark á því þegar við þróum grunnþjónustu okkar á bilinu sem þarf að brúa milli fæðingarorlofs og leikskóla.
Til framtíðar litið
Síðastliðin ár hafa stórir árgangar fæðst í Reykjavík og því hefur borgin aukið umtalsvert fjármagn til leikskóla og dagforeldra. Við höfum forgangsraðað í knappri stöðu borgarsjóðs til að tryggja grunnþjónustu sem reykvískir foreldrar treysta á. Dagforeldrar vilja að borgin hækki niðurgreiðslur til þeirra svo að foreldrar greiði svipað verð og væru börnin á leikskóla. Það tekur í pyngjuna að eiga barn hjá dagforeldri, því er hugmyndin góðra gjalda verð. Borgin hefur hingað til ekki haft það svigrúm sem þarf, því miður. Það er erfitt að mæta kröfum um verulega hækkun niðurgreiðslna til dagforeldra á sama tíma og risastórir árgangar barna þarfnast leikskóla og dagforeldra. Hins vegar skapast mikilvægt svigrúm til þess að gera betur þegar fæðingarorlofssjóður verður styrktur og orlofið lengt.
Fæðingarorlofið þarf að lengja
Borgarstjórn samþykkti nýverið einróma tillögu þess efnis að borgin ræði formlega við ríkisvaldið nauðsyn þess að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Fæðingarorlof á Íslandi er mun styttra en hjá öðrum norrænum ríkjum, það er staðreynd. Samþykktin í borgarstjórn er ekki yfirlýsing um að borgin telji dagforeldra minna mikilvæga. Dagforeldrar verða áfram órjúfanlegur hluti af tilveru reykvískra fjölskyldna með ung börn. Hins vegar er mikilvægt að tryggja að samvera ungra barna með foreldrum sínum geti verið sem mest – og einnig að borgin þrói áfram leikskólastarf fyrir yngstu börnin þannig að komið sé til móts við þann hóp foreldra sem sannarlega velur leikskólana umfram allt annað.
Tengdar fréttir

Opið bréf til borgarfulltrúa
Stjórn Barnsins, félags dagforeldra í Reykjavík, lýsir furðu sinni á þeim vinnubrögðum sem hafa verið viðhöfð af hálfu meirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkurborgar þegar kemur að dagforeldramálum.

Um þjónustu við börn
Mér er bæði ljúft og skylt að svara opnu bréfi Sigrúnar Eddu Lövdal sem birtist í Fréttablaðinu í gær um fyrirhugaðar viðræður borgarinnar við ríkið um þjónustu við ung börn.
Skoðun

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar