
Hvað hefur eyðilagt rammaáætlun?
Lærdómurinn sem við öll ættum að hafa dregið af hruninu er að vanda þurfi til verka þegar teknar eru stefnumarkandi ákvarðanir sem snerta almannahag og komandi kynslóðir. Það er og sjálfsögð og eðlileg krafa almennings að þeir sem hafa umboð til að taka ákvarðanir um okkar hag vandi til þeirra og taki upplýstar ákvarðanir. Einmitt þess vegna var ferli rammaáætlunar sett upp, til að ákveða hvað skuli að nýta og hvað skuli að vernda, þannig að ríkari sátt geti orðið um nýtingu og verndun. Þá getur þurft að sætta ólík sjónarmið og ganga bil beggja en það er til dæmis okkar mat að í okkar kjördæmi sé of langt gengið í virkjunaráformum.
Í fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga étur nú hver virkjunarsinninn eftir öðrum að ferli rammaáætlunar sé úr lagi gengið. Búið sé að ónýta faglegt ferli og hinir óskynsömu pólitíkusar hafi nú eyðilagt þetta mál eins og þeir hafa eyðilagt flest önnur. Þannig eru hin og þessi rök tínd til því til staðfestingar að góðri og faglegri vinnu hafi verið umturnað á síðustu metrunum.
Skoðum það nánar
Verkefnahópar skoðuðu 84 virkjunarhugmyndir og af þeim voru 66 hugmyndir metnar af öllum faghópunum. Í 18 tilvikum var ekki hægt að ljúka mati vegna skorts á gögnum eða þau bárust svo seint að ekki vannst tími til að nýta þau í mati. Af þessum 84 hafa 14 virkjanir nú þegar farið í gegnum mat á umhverfisáhrifum og ein þeirra, Búðarhálsvirkjun er nú þegar í byggingu. Í nokkrum ám eru lagðar fram fleiri en ein veitu- eða virkjunarhugmynd þar sem ein útilokar aðra. Þannig er ástatt um 7 virkjunarhugmyndir.
Sá þáttur sem virðist hafa eyðilagt 16 ára vinnu við rammaáætlun og spillt bæði ferli og niðurstöðum byggist á umsögnum frá næstum 400 aðilum sem fólu í sér ýmiss konar leiðbeiningar, ábendingar og athugasemdir. Þegar farið var yfir umsagnirnar kom í ljós að tveir kostir féllu út af tæknilegum ástæðum. Niðurstaðan varð sem sagt sú að fyrir utan leiðréttingarnar tvær er tillagan samhljóða drögunum um 61 kost, en lagt er til að sex kostir á tveimur svæðum fari í biðflokk meðan aflað er um þá frekari upplýsinga.
Staðreyndir málsins eru þær að í lögbundnu umsagnarferli komu fram sterk rök fyrir því að sex af 84 virkjunarkostum sem skoðaðir hafa verið síðan 1999 þyrfti að skoða betur. Þær ábendingar áttu allar sammerkt að fela í sér nýjar upplýsingar sem ekki hafði verið fjallað um í faghópunum áður. Sex virkjunarkostir voru því færðir úr nýtingarflokki í biðflokk á meðan frekari upplýsinga er aflað.
Er í raun og veru einhver sem getur verið ósammála því?
Skoðun

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar