

Við hvað erum við hrædd?
Eigum við að treysta flokkum sem margoft hafa lofað sömu hlutum áður en margsvikið þá jafnharðan og látið sérhagsmuni og hagsmuni flokksins stjórna ákvörðunum? Erum við svo hrædd að við viljum ekki gefa nýju fólki tækifæri til að sanna sig? Er betra að kjósa yfir sig sömu spillinguna aftur? Hvað er það versta sem gerist?
Ég hef ákveðið að treysta hópi fólks sem hefur, eða margir í hópnum, unnið með Hagsmunasamtökum heimilanna, og sérfræðingum, að því að útfæra raunhæfar og sanngjarnar lausnir í efnahagsmálum fyrir almenning síðastliðin 4 ár. Þetta fólk kemur úr mismunandi áttum og starfstéttum og hefur ekki aðra hagsmuni en að vilja betra kerfi fyrir íbúa landsins. Þetta á jafnt við um húseigendur og leigjendur, fólk og fyrirtæki.
Sú fullyrðing var höfð eftir forsvarsmönnum ASÍ í fréttum á dögunum að enginn flokkur væri með stefnu í málum fátækra. Þessi fullyrðing er röng. Við í Dögun teljum það algjört forgangsatriði að lögfesta lágmarksframfærslu í þessu landi og hækka skattleysismörkin verulega. Þetta mun að sjálfsögðu helst gagnast þeim tekjulægstu sem búa við ómannsæmandi lífsskilyrði í þessu ríka landi.
Eðlilegt er að spyrja hvaðan peningarnir eigi að koma til að koma þessu í framkvæmd. Dögun hefur bent á að mikilvægt sé að endursemja um skuldir ríkisins, setja mjög háa skatta á gróða fjármálafyrirtækja og peninga sem reynt er að flytja úr landi. Því því fer fjarri að þessir peningar séu ekki til á landinu, þeim þarf bara að dreifa réttlátar. Er eðlilegt að ríkið, og þar með almenningur, hlaupi undir bagga með bönkum þegar þeir hafa farið offari í fjárfestingum og útlánum, þegar sömu stofnanir raka inn gróðanum örfáum mánuðum seinna?
Að sjálfsögðu mun hagur ríkis og almennings vænkast verulega þegar byrjað verður að innheimta arð af auðlindum landsins. Dögun setur það sem eitt af forgangsmálum sínum að fiskur, orka og aðrar auðlindir séu í þjóðareigu.
Dögun er grænn flokkur sem styður sjálfbærni, jafnrétti og mannúð á öllum sviðum. Auk ítarlegrar stefnu um efnahagsmál höfum við útfært stefnu í jafnréttismálum, í vímuefnamálum, málefnum flóttafólks, á sviði landbúnaðar, í umhverfismálum, sjávarútvegs-, atvinnu- og byggðamálum, velferðarmálum, alþjóðamálum og lýðræðisumbótum svo fátt eitt sé nefnt. Drög að stefnu í menntamálum og menningarmálum liggja einnig fyrir.
Dögun vinnur í samræmi við svokallað flatt skipulag. Við erum ekki með formann og allir eru jafnréttháir. Öllum er frjálst að koma með tillögur sem lagðar eru fyrir opna félagsfundi.
Látum ekki hræðslu við nýtt fólk koma í veg fyrir að við getum saman endurreist Ísland úr valdi spillingar. Við krefjumst siðferðilegrar jafnt sem efnahagslegrar endurreisnar!
Endilega kynnið ykkur stefnumálin á xT.is
Skoðun

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Gunnar Örn Vopnfjörð Þorsteinsson skrifar

Hvernig gerum við Grundarhverfi enn betra?
Ævar Harðarson skrifar

Matvælaframleiðslulandið Ísland – er framtíð án sérþekkingar?
Ólöf Guðný Geirsdóttir,Ólafur Ögmundarson skrifar

120km hraði á Keflavíkurveginum og netsölur með áfengi
Jón Páll Haraldsson skrifar

Lausnin liggur fyrir – Landspítali þarf að stíga skrefið
Sandra B. Franks skrifar

Auðbeldi SFS
Örn Bárður Jónsson skrifar

Skjárinn og börnin
Daðey Albertsdóttir,Silja Björk Egilsdóttir,Skúli Bragi Geirdal skrifar

„Er stjúpmamma þín vond eins og í Öskubusku?“
Hafdís Bára Ólafsdóttir skrifar

Af hverju er Framsóknarfólk hamingjusamast?
Árelía Eydís Guðmundsdóttir skrifar

Norska leiðin hefur gefist vel – í Póllandi
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Opið hús fyrir útvalda
Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar

Af hverju hræðist fólk kynjafræði?
Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar

Hlustum á okkar landsliðskonur - sýnum Ísrael rauða spjaldið
Hrönn G. Guðmundsdóttir,Ragnhildur Hólmgeirsdóttir skrifar

Hópnauðganir/svartheimar!
Davíð Bergmann skrifar

Valdið og samvinnuhugsjónin
Kjartan Helgi Ólafsson skrifar

NPA breytti lífinu mínu
Sveinbjörn Eggertsson skrifar

Hefur þú tilkynnt um ofbeldi gegn barni?
Alfa Jóhannsdóttir skrifar

Gildi kærleika og mannúðar
Toshiki Toma skrifar

Hvernig tryggjum við samkeppnishæfni þjóðar?
Jón Skafti Gestsson skrifar

Í minningu Frans páfa - sem tók sér nafn verndardýrlings dýra og náttúru
Árni Stefán Árnason skrifar

Flottu kjötauglýsingarnar í blöðunum...
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Grafarvogsgremjan
Þorlákur Axel Jónsson skrifar

Er ég að svindla? – Um sambýli manns og gervigreindar í sköpun og þekkingu
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Fjármögnuðu stríðsvél Rússlands
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Hugleiðingar á páskum
Ámundi Loftsson skrifar

Gremjan í Grafarvogi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Samlokan á borðinu: Hugleiðingar á föstudeginn langaum sjónvarpsþættina Adolescence
Skúli Ólafsson skrifar

Móttaka skemmtiferðaskipa - hlustað á íbúa
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar