
Menntun í síbreytilegu samfélagi
Ég átti líka að safna heimildum fyrir hin og þessi skólaverkefni en ég skildi aldrei af hverju. Ég hafði ekki hugmynd um hvaðan ég gæti fengið upplýsingar nema úr kennslubókunum. Einu sinni skrifaði ég stutta grein um lagið Jail House Rock og giskaði á að það hefði fyrst verið flutt af Elvis Presley. Næstum allt hefur breyst síðan þá, upplýsingatæknin hefur breytt samfélaginu gríðarlega mikið, gríðarlega hratt.
Menntakerfinu er ætlað að vera tæki til þess að kenna hvernig samfélagið virkar og að miðla hæfileikum til að skapa nýja þekkingu. Stundum dugar ekki að breyta bara því sem er kennt. Stundum þarf að breyta hvernig er kennt, hvernig menntakerfið sjálft virkar. Það er mjög mikil þróun í kennslu á internetinu, fjarkennsla hefur líka aukist gríðarlega og möguleikarnir eru óþrjótandi. Upplýsingar eru nú aðgengilegar hverjum sem vill vita og hefur engan áhuga á að giska.
Samvinna um breytingar
Píratar sjá fyrir sér ýmsar breytingar á menntakerfi Íslendinga í anda finnsku leiðarinnar. Breytingar sem geta bara gerst í samvinnu við kennara og nemendur. Breytingar svo sem jafnara vægi bók-, list- og verkmenntagreina, smærri bekkir, lítil sem engin heimavinna, fjölbreyttara námsmatskerfi og virðing fyrir störfum kennara. Miðað við núverandi mælingar á árangri menntakerfa víðs vegar um heiminn þá er það finnska talið vera það besta. Píratar gera sér hins vegar grein fyrir því að það er þörf á fjölbreyttara menntaumhverfi, sem er ekki eingöngu bundið við menntastofnanir, við lærum og kennum alls staðar.
Í tillögum stjórnlagaráðs segir að menntun skuli miða meðal annars að vitund um mannréttindi, lýðræðisleg réttindi og skyldur. Píratar vilja að námsgreinar í grunnnámi eigi að sinna fræðslu um þessi málefni og nokkur önnur til viðbótar. Viltu vera hjúkrunarfræðingur, múrari, leikari eða verkfræðingur? Hversu mikið vissir þú um hvað þú vildir verða þegar þú yrðir stór áður en þú fórst í raun og veru að vinna? Hversu mikið þurftir þú að giska? Píratar leggja áherslu á gagnrýna hugsun og vel upplýstar ákvarðanir.
Rétt eins og lýðræði er best þegar allir taka þátt þá mælist árangur menntunar í þátttöku, við lærum ekki á samfélagið án þess að taka þátt í því. Við skiljum betur hvað við erum að læra og af hverju ef við fáum að glíma við vandamálin án milliliða í samvinnu við alla sem eiga hlut að máli. Píratar vilja samfélag upplýsingar, opins aðgengis, jafnréttis og borgararéttinda í síbreytilegu samfélagi. Slíkt samfélag byrjar í menntakerfinu.
Skoðun

Eru græn svæði í útrýmingarhættu í Reykjavík?
Sigrún Ásta Einarsdóttir skrifar

Efla á forvarnir og setja börn í öndvegi með 5,7 milljarða niðurskurði
Grímur Atlason skrifar

„...ég lærði líka að nota gagnrýna hugsun“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir skrifar

Risastór niðurskurður ríkistjórnarinnar er áfall fyrir foreldra og börn í landinu
Sigurður Sigurðsson skrifar

Látið okkur í friði
Vilhjálmur Árnason skrifar

Gefðu fimmu!
Ágúst Arnar Þráinsson skrifar

Allar hendur á dekk!
Oddný G. Harðardóttir skrifar

Engin sátt án sannmælis
Kristinn Karl Brynjarsson skrifar

Að finna rétt veiðigjald...
Bolli Héðinsson skrifar

Hvað viltu að samskiptin á vinnustaðnum kosti?
Carmen Maja Valencia skrifar

Stórt inngrip í rekstur íþróttafélaga!
Jóhanna Dýrunn Jónsdóttir skrifar

Börn voga sér inn í afbrotaheim fullorðinna eða er það öfugt?
Davíð Bergmann skrifar

Sósíalistaflokkurinn verður að snúast um meira en rassgatið á Gunnari Smára
Trausti Breiðfjörð Magnússon skrifar

Og hvað svo?
Eyrún Birna Davíðsdóttir skrifar

Óboðlegt svar um ótæka stjórnsýslu
Guðmundur Andri Thorsson skrifar

Sannleikurinn í tengdamömmumálinu
Ólöf Björnsdóttir skrifar

Hann breytti öllu – og gerði það með háði
Jónas Sen skrifar

Ekki fylla höfnina af grjóti
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Lengri útivistartími barna
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Við stöndum saman með íþróttafólkinu – en hvað með fólkið á bak við það?
Ingibjörg Isaksen skrifar

Að því að rjúfa vítahring kynslóðabundinna afbrota
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

Flugan í ídýfunni
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir skrifar

Að mennta til lífs, ekki prófa
Sandra Sigurðardóttir skrifar

Það er kominn tími til...
Birgir Rúnar Davíðsson skrifar

Er EES samningurinn gagnlaus fyrir Ísland?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

Er píptest rót alls ills?
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vertu bandamaður kæri bróðir!
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar

Frá frammistöðuvæðingu til farsældar
Helga Þórey Júlíudóttir skrifar

Ísland á að verja með íslenskum lögum
Arnar Þór Jónsson skrifar

Fyrsta skrefið í átt að betri Menntasjóði
Logi Einarsson skrifar