
Kosningar til Alþingis vorið 2013
Síðan eru liðin 1.139 ár.
Ef við reiknum með því að meðal kynslóðabil sé 25 ár, þá eru það fertugasta og fjórða og fimmta kynslóð Íslendinga, sem ganga að kjörborðinu þann 27. apríl nk. Óvenjumargir möguleikar standa okkur til boða í þessum kosningum og óvenjumikilvægt er nú að vel sé vandað til verka við kjörborðið.
Hvers vegna?
Jú, nú er ágangur á landgæði og auðlindir orðinn það mikill að tvísýnt er hvort náttúran hefur mikið lengur afl til endurnýjunar.
Óvíst er hvaða áhrif loftslagsbreytingar hafa á lífríkið og afkomu mannkyns í kjölfarið á þeim.
Við Íslendingar ráðum yfir ríkulegum auðlindum sem við höfum ekki hugað nægilega vel að á undanförnum árum. Við höfum misst tökin á fiskveiðistjórnuninni og við höfum valið álframleiðslu sem áhugaverðasta atvinnuveg okkar með því að stýra 75% af raforkuframleiðslu okkar til þess iðnaðar. Og stefnum lengra á þeirri vegferð.
Ég tel að tími sé kominn til að að stoppa aðeins við og líta til framtíðar.
Ég tel að velferðarmál séu þau mál sem mestu skipta í þessum kosningum.
Velferðarmál eru í raun umhyggja fyrir öllu lífi. Gróður, dýralíf, mannlíf. Öll þessi mál eru velferðarmál. En einnig auðlindir þjóðarinnar.
Við viljum skila komandi kynslóðum landinu og auðlindum þess í betra ásigkomulagi en við tókum við því. Það eru undirstöður þess, að þær kynslóðir sem taka við landinu, kjósendur framtíðarinnar, lifi sómasamlegu lífi. Ef það á að takast verða þær kynslóðir sem nú nýta gæði landsins og auðlindir þess að gæta hófs. Að fara á svig við álit sérfræðinga getur orðið komandi kynslóðum dýrt.
Hræddur er ég um að sú ágæta kona, Sif Friðleifsdóttir, uni því ekki vel skrái sagan hana sem þá sem lagði lífríki Lagarfljóts í rúst.
Velferð byggir á heilsu, atvinnu, félagslífi og menningu.
Heilsa, atvinna, félagslíf og menning byggja á menntun.
Menntun byggir á góðum stjórnarháttum.
Góðir stjórnarhættir byggja á lögum.
Lög byggja á vel útfærðri stjórnarskrá.
Stjórnarskrá byggir á löngun til að gera vel.
Allt þetta kostar. Engir greiða þá reikninga aðrir en við sjálf. Þess vegna skil ég ekki þessa sterku þörf til þess að greiða ekki samfélagsleg gjöld. Helstu loforð margra stjórnmálamanna eru að losa fólk við samfélagsleg gjöld, en fara samtímis mjög illa með þá fjármuni sem finna má í ríkiskassanum.
Við höfum drög að stjórnarskrá sem er að mati landsmanna vel unnin, af breiðum hópi fólks, með ólíkar skoðanir.
Við búum við stjórnarskrá frá 17. júní 1944, sem var hugsuð sem skammtímastjórnarskrá og hefur því verið í endurskoðun síðan þá, án teljandi árangurs þar til nú.
Ég óska þess að þær kynslóðir sem koma til með að byggja Ísland næstu 1.139 ár geti notið landsins gæða og geti hugsað til kynslóða 20. og 21. aldarinnar sem þeirra kynslóða sem byggðu undir þá velferð.
Vegna þess að stjórnmálamenn allra flokka, þó sér í lagi Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks, hafa alla tíð dregið lappirnar í þessu máli og þar með laskað starfsemi Alþingis til vandaðra lagasmíða, hef ég ákveðið að styðja þann flokk manna sem stendur fastast að því að ljúka stjórnarskrármálinu. Stjórnarskráin er undirstaða góðs mannlífs.
Öll önnur mál eru háð því að vel takist með því.
Skoðun

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar

Ábyrgð auglýsenda á íslenskri fjölmiðlun
Daníel Rúnarsson skrifar

Vofa illsku, vofa grimmdar
Haukur Már Haraldsson skrifar