Tímósjenkó laus og Janúkovítsj sviptur völdum Elimar Hauksson skrifar 22. febrúar 2014 20:00 Tímósjenkó var dæmd í sjö ára fangelsi fyrir misnotkun valds í tengslum við gassamning sem hún gerði við rússnesk stjórnvöld árið 2009. Mynd/afp
Júlía Tímósjenkó, fyrrverandi forsætisráðherra Úkraínu, hefur nú verið látin laus úr haldi eftir að hafa setið í fangelsi í rúmlega tvö ár. Úkraínska þingið samþykkti þingsályktunartillögu þar sem fangelsisdómur sem Tímósjenkó hlaut árið 2011 var snúið við. Hún var í október 2011 dæmd til sjö ára fangelsisvistar fyrir misnotkun valds í tengslum við gassamning sem hún gerði við rússnesk stjórnvöld árið 2009. Tímósjenkó hefur alla tíð haldið því fram að sakfellingin hafi verið byggð á lygavef en Evrópusambandið hafði krafist þess að hún yrði látin laus sem eitt af skilyrðum viðskiptasamninga ESB og Úkraínu, sem Janúkovítsj hafnaði á seinasta ári og varð kveikjan að því ófremdarástandi sem ríkir nú í landinu. Úkraínska þingið samþykkti í dag einnig að svipta forseta landsins, Viktor Janúkóvitsj, völdum og boða til kosninga í lok maí. Forsetinn er talinn hafa flúið Kænugarð seint í gærkvöldi en aðstoðarmaður hans lét hafa það eftir sér að Janúkovítsj væri nú í borginni Kharkiv í austurhluta Úkraínu þar sem hann nýtur enn nokkurs stuðnings.
Úkraína Mest lesið Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Erlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Innlent Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Erlent Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Innlent Háværar framkvæmdir stöðvaðar Innlent Fleiri fréttir Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Sjá meira