Skoðun

Merkingarlaus umhverfismerking

Ólafur Þ. Stephensen skrifar
Fréttablaðið upplýsti í vikunni að merkingin „vistvæn landbúnaðarafurð“ sem er á umbúðum alls konar búvöru, væri í raun fullkomlega merkingarlaus.

Merkinu var komið á með vottun samkvæmt opinberri reglugerð árið 1998. Þar var kveðið á um ýmis skilyrði þess að geta fengið vottunina; til dæmis að skepnum hafi ekki verið gefnir hormónar eða óhóflega mikið af sýklalyfjum, að notkun á áburði, lyfjum og varnarefnum í garðyrkju sé innan tiltekinna marka, og búfjárbeit rýri ekki landgæði.

Þegar þeir sem fá vottunina hafa fengið hana, á að meta með árlegu eftirliti hvort þeir uppfylli skilyrðin áfram; annars er vottunin afturkölluð og þar með rétturinn til að nota merkinguna.

Annars vegar stendur hnífurinn þar í kúnni; eftirlit með vottuninni hefur ekki verið neitt í tólf ár. Atvinnuvegaráðuneytið, áður landbúnaðarráðuneytið, sem setti reglugerðina og á samkvæmt henni að geyma skrár um framleiðendur sem hafa hlotið vottunina, hefur engar upplýsingar um hverjir nota merkinguna.

Hins vegar fann Fréttablaðið staðfest dæmi um að framleiðendur sem komu á markað eftir að hætt var að hafa eftirlit með vottuninni hafa engu að síður merkt vörur sínar sem „vistvæna landbúnaðarafurð“. Það heitir einfaldlega að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Sama má raunar segja um þá sem einhvern tímann kunna að hafa uppfyllt skilyrðin og gera það jafnvel ennþá, en án þess að nokkur til þess bær aðili votti það eins og vera ber. Það á til dæmis við um næstum því alla grænmetisbændur í landinu.

Alls konar merkingar og vottanir um að fylgt sé vistvænum framleiðsluháttum, passað upp á umhverfið, velferðar dýra gætt og þar fram eftir götunum, skipta æ meira máli við markaðssetningu matvöru. Meðvitaðir neytendur fylgjast með þessum merkingum og beina viðskiptum sínum til þeirra sem hafa fengið opinbera gæðastimpla. Það er grafalvarlegt mál þegar framleiðendur skreyta vörur sínar með merki, sem engin raunveruleg vottun eða eftirlit liggur að baki. Með því er verið að blekkja neytendur.

Eins og Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, benti á í Fréttablaðinu eru þetta líka ósanngjarnir samkeppnishættir. Grænmetisframleiðendur sem þykjast vera vistvænir eru í samkeppni við framleiðendur með lífræna vottun, sem er alvöru vottun, útheimtir mikla vinnu og gæðaeftirlit og sætir ströngu árlegu eftirliti.

Það er þess vegna gott hjá Sigurði Inga Jóhannssyni landbúnaðarráðherra að lýsa því yfir í Fréttablaðinu í dag að annaðhvort verði eftirliti með vottuninni komið á aftur, eða reglugerðin einfaldlega slegin af. 



Hins vegar er pínulítið dularfullt að ráðuneytið hans, sem ætti að hafa vitað það í tólf ár að það hefur ekkert eftirlit með vottuninni og heldur engar skrár um þá sem hafa fengið hana, skuli á þeim tíma ekki hafa gert neinar athugasemdir við að búvöruframleiðendur merktu vörur sínar með henni.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×