Björn Björnsson, einn af þjálfurum íslenska kvennalandsliðsins í fimleikum, segir mikinn spenning fyrir morgundeginum þegar úrslitin ráðast á EM í hópfimleikum sem fer fram hér á landi.
„Nú er bara stóri dagurinn þar sem við þurfum að framkvæma það sem við erum búin að undirbúa sem lið síðustu fjóra mánuði, og þessar stelpur miklu lengur sem einstaklingar. Við erum mjög spennt og hlakkar mikið til morgundagsins,“ sagði Björn í samtali við Vísi í dag.
Ísland, sem á titil að verja í kvennaflokki, hafnaði í öðru sæti í forkeppninni í gær, en íslenska liðið fékk 56,450 stig í heildina. Sænska liðið varð hlutskarpast, en það fékk 56,733. Björn er nokkuð sáttur með hvernig til tókst í gær.
„Já, þetta var fínt. Við hefðum sannarlega getað gert betur á nokkrum stöðum, en við vitum að við eigum það inni. Það voru hlutir sem gengu ekki upp sem komu okkur svolítið á óvart. Við bjuggumst ekki við að þeir færu úrskeiðis,“ sagði Björn, en hvað var það sem betur mátti fara í gær.
„Fyrsta umferðin okkar á dýnu. Hún hefur verið mjög stöðug, en við misstum í raun það sem kallast liðsumferð. Tvær stelpur fengu æfinguna ekki gilda, en við vonumst til að það verði í lagi á morgun. Það skiptir gríðarlega miklu máli upp á einkunnina.
„Við áttum góðan fund í gær og ræddum hvað við hefðum getað gert betur. Hópurinn er gríðarlega vel stemmdur og ákveðinn í að klára dæmið á morgun.“
Íslenska liðið varð fyrir áfalli þegar Valgerður Sigurfinnsdóttir, Gerplu, meiddist í lokastökkinu, en liðið þarf að fylla skarð hennar á morgun.
„Líklegast er hún ekki alvarlega slösuð. Það kemur betur í ljós síðar í dag þegar hún fer í myndatöku og frekari skoðun. Hún tognaði aðeins á liðböndunum í hnénu, en við fáum Glódísi (Guðgeirsdóttur) inn í staðinn. Við hvíldum hana í gær, en hún er gríðarlega öflug og ætlar að fylla skarð Völu að einhverju leyti,“ sagði Björn, en þjálfararnir voru að æfa stökk með Glódísi þegar blaðamaður Vísis hitti hann að máli.
Björn gerir ráð fyrir því að Svíar verði helsti andstæðingur Íslands á morgun.
„Við sáum sænska liðið í gær og það var gríðarlega flott. Það verður ekkert tekið af þeim að þeir áttu dýnuna og trampólínið í gær, en við áttum dansgólfið og ætlum að eiga það á morgun,“ sagði Björn að lokum.
