Tónlistarhátíðin ATP hafin

ATP hátíðin var fyrst haldin árið 1999 í Camber Sands í Sussex í Englandi en nú er hátíðin haldin víða um heim, meðal annars í Ástralíu og Japan. ATP var fyrst haldin í Ásbrú í Keflavík árið 2013 við góðar viðtökur. Í ár sækja um fimm þúsund manns hátíðina heim, þar af rúmlega helmingurinn erlendir gestir.
Á ATP er sérstök kvikmyndadagskrá órjúfanlegur hluti af hátíðinni en í ár verður það hljómsveitin Mogwai sem stýrir dagskránni í tilefni tuttugu ára afmælis hljómsveitarinnar sem kom einmitt fram á hátíðinni síðasta ár. Sveitin er vel kunnug kvikmyndaforminu en meðlimir hennar hafa samið tónlist fyrir hinar ýmsu kvikmyndir í gegnum tíðina.
Formleg dagkrá ATP á íslandi hefst klukkan tólf í dag og stendur fram á nótt en reglulegar rútuferðir verða á milli BSÍ og hátíðarsvæðisins. Fjörtíu og tvær hljómsveitir koma fram á ATP í ár á þremur sviðum á gamla hersvæðinu í Ásbrú. Á meðal þeirra sem koma fram eru HAM, Ghostdigital, Public Enemy, Run The Jewels,Swans, Iggy Pop og Belle And Sebastian.
Tengdar fréttir

Chuck D úr Public Enemy spreytir sig á íslenskunni
„Helvítis fokking fokk,“ segir rappfrumkvöðullinn.

ATP hefst á fimmtudag: Dagskráin klár
Tónlistarhátíðin ATP á Íslandi hefst fimmtudaginn næstkomandi. Er þetta í þriðja sinn sem hátíðin er haldin og stefnir allt í þrusu hátíð líkt og fyrri ár.

Public Enemy á ATP hátíðinni á Ásbrú
Enn bætist í flóru listamanna sem koma fram á All Tomorrow's Parties.

Goðsögn á leiðinni: Iggy Pop kemur til landsins
Iggy Pop kemur fram á ATP tónlistarhátíðinni í febrúar

„Helvítis fokking fokk“ og íslenskt Tyrkisk Peber
Söngvari hljómsveitarinnar Lightning Bolt sem leikur á ATP fer mkinn í tveimur nýjum myndböndum.

Öll stærstu nöfnin á sama kvöldinu á ATP
"Ólíkt Wu-Tang Clan þá eru allir meðlimir Public Enemy að koma,“ segir stofnandi og skipuleggjandi ATP.

Hlustaðu á lögin sem reikna má með að Belle & Sebastian taki á ATP
Skotarnir í Belle & Sebastian verða á meðal þeirra hljómsveita sem trylla munu lýðinn á ATP tónlistarhátíðinni sem hefst á Ásbrú í Keflavík á fimmtudaginn.

60% kaupenda útlendingar
Gert er ráð fyrir fleiri gestum í ár en í fyrra en um 3.000 miðar hafa selst á ATP-tónlistarhátíðina sem fram fer á Ásbrú í Keflavík 2.-4. júlí.