

HIV og "hælisleitendur“
Í kjölfar fréttanna tóku bæði opinberir aðilar eins og læknir og einstaklingar þátt í umræðunni og reyndu að stöðva aukningu fordóma í garð HIV-smitaðs fólks í fæðingu. HIV-veiran er ekki bráðsmitandi eins og ebólan. Það er enginn hætta á smiti ef viðkomandi fer varlega og setur öryggið á oddinn, einkum í kynlífi þar sem smitleiðir eru algengastar, en í flestum tilfellum er hegðun HIV-smitaðra mjög ábyrg að sögn sérfræðings.
Ég þakklátur fyrir framlag þessa fólks, sem hefur þekkingu á málinu og deilir henni á opinberum vettvangi. Því langar mig að gera hið sama varðandi hælisleitanda í þjóðfélagi okkar.
Hælisleitendur eru ekki einsleitur hópur. Það eina sem þeir eiga í raun sameiginlegt er að hafa flúið heimaland sitt og sótt um alþjóðlega vernd á Íslandi. Ýmis áþreifanleg atriði fylgja þessari staðreynd. Hælisleitendur fara allir í gegnum ákveðið móttökuferli hér á landi, þeir gista á ákveðnum gistiheimilum, þiggja aðstoð þjónustu miðstöðvar, þeir hafa ekki kennitölu í upphafi dvalar og stundum fá þeir hana bara alls ekki og fleiri atriði mætti upp telja.
Ef til vill líta hælisleitendur út fyrir að vera hópur, einsleitur hópur, í augum almennings en líkindin með einstaklingunum í hópunum eru afar yfirborðsleg og hver á sér sína sérstöku sögu. Önnur atriði sem tengjast tilveru hælisleitenda eru dýpri eins og persónuleiki, mannkostir og hæfileikar sem speglast illa í orðinu ,,hælisleitandi“. Orðið er yfirborðskennt og er oftast einungis til bráðabirgða.
Ég er í daglegum samskiptum við hælisleitendur. Ég játa að ég þekki ekki alla hælisleitendur persónulega og einnig viðurkenni ég að það eru líka erfiðar manneskjur á meðal þeirra. En mér finnst það vera bara vera eðlilegt, manneskjur eru misjafnar og samfélag mannanna fjölbreytt og margbreytilegt.
Ég þekki hvorki þann mann sem nú er í fréttum né veit nánara um málið og því ætla ég ekki að gagnrýna manninn eða vernda. Hins vegar þekki ég fleiri hælisleitendur vel og persónulega og ég get fullyrt að þeir eru jú flott fólk í langflestum tilfellum. Mér finnst það sorglegt ef viðkomandi mál gefur slæm áhrif á viðhorf almennings til hælisleitenda almennt.
Mér finnst þó óskiljanleg áhersla sem lögð er á orðið ,,hælisleitandi“ í nokkrum umfjöllun um þennan HIV-smitaða mann, en að mínu mati er engin bein ástæða til þess að greina frá því að maðurinn sé hælisleitandi.
Að lokum langar mig að bera vitni mitt: Hælisleitendur sem ég þekki eru góðar og venjulegar manneskjur og haga sér kurteisislega og almennilega í flestum tilfellum, þó ekki í öllum tilfellum. Orðið ,,hælisleitandi“ nýtist ekki til þess að meta persónuleika manneskju og mannkosti.
Skoðun

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar