„Ég er búinn að fara á flestar meðferðarstofnanir á Íslandi. Ég á að baki 26 innlagnir inn á Vog en ég var tólf, að verða þrettán, þegar ég smakkaði áfengi fyrst. Mánuði síðar prufaði ég að reykja hass og það fór stigversnandi,“ segir Þóra Björg Sigríðardóttir við Lóu Pind Aldísardóttur í Íslandi í dag.
Þóra segir mikilvægt að unglingar og fullorðnir séu ekki á sama stað í meðferð. Nýfermdar stelpur eigi ekki heima á sama stað og þrítugir karlar sem eru kannski nýkomnir úr fangelsi.
„Ég kom úr meðferð en ég datt alltaf í það strax aftur. Sextán ára byrjaði ég að sprauta mig. Þá fer allt á hliðina. Ég missi tökin á öllu,“ segir hún. Innslagið úr Ísland í dag má sjá hér að neðan. Hægt er að sjá þáttinn í heild með því að smella hér er þar er meðal annars rætt um málefni þeirra sem þurfa ítrekað á meðferð að halda.
Ísland í dag: Hefur farið 26 sinnum í meðferð síðan hún var þrettán
Tengdar fréttir

Stöðug sjálfsrannsókn nauðsynleg fyrir SÁÁ
Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ, gerir fíknimeðferð fyrir konur meðal annars að umfjöllunarefni í nýjum pistli sem birtur er á vefsíðu samtakanna.

Formaður SÁÁ segir talskonu Rótarinnar sýna mikilmennsku og fordóma
"Talskonu Rótarinnar var misboðið að einhver svona "kardó-gaur“ var á sama sjúkrahúsi og hún og þau þurftu að nota sama mötuneyti,“ segir Arnþór Jónsson, formaður SÁÁ.

Segir dæmi um að fullorðnir nýti sér neyð unglinga á Vogi
Félagið hefur sent umboðsmanni barna erindi þar sem spurt er hvort umboðsmaður telji aðbúnaður barna á Vogi uppfylla ákveðin lagaskilyrði.

Segir mikið af fíkniefnum í umferð á Vogi
Aðalsteinn Árdal Björnsson komst auðveldlega í lyf á Vogi þegar hann fór þangað til að taka út hluta fangelsisdóms.