Systurnar voru handteknar á föstudag fyrir að hafa reynt að kúga fé út úr Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni forsætisráðherra.
Í gær kærði annar maður systurnar fyrir að hafa kúgað sig til að borga sér 700 þúsund krónur annars yrði hann kærður til lögreglunnar fyrir að hafa nauðgað Hlín. Maðurinn og Hlín fóru heim saman á laugardagskvöldi í apríl.
Á mánudeginum á eftir komu þær Hlín og Malín að heimili hans og báðu hann að koma út í bíl til sín. Þar báru þær upp á hann nauðgunina og tilkynntu honum að hann yrði kærður myndi hann ekki borga þeim 700 þúsund krónur.

Systurnar voru yfirheyrðar hvor í sínu lagi í gær og stóðu yfirheyrslur fram eftir kvöldi. Malín kom út af lögreglustöðinni rétt eftir níu í gærkvöldi og settist upp í bíl verjanda síns sem ók með hana á brott.

Systurnar höfðu áður verið handteknar síðastliðinn föstudag við Vallahraun í Hafnarfirði í umfangsmikilli aðgerð lögreglu í kjölfar þess að bréf var sent á heimili forsætisráðherra, stílað á eiginkonu hans, þar sem því var hótað að upplýsingum sem kæmu forsætisráðherranum illa yrði lekið í fjölmiðla.
Samkvæmt upplýsingum frá Embætti ríkislögreglustjóra tóku þrettán sérsveitarmenn þátt í aðgerð lögreglu í Hafnarfirði.

Ekki eru til nein opinber gögn sem tengja ráðherrann við fjölmiðlaveldi Björns Inga Hrafnssonar, útgefanda og eins aðaleigenda Pressunnar ehf., sem fer með eignarhald nokkurra fjölmiðla.
Til þess að komast undan því að þessum upplýsingum yrði lekið átti að borga átta milljónir króna og koma með þær í tösku á tiltekinn stað í hrauninu. Þegar systurnar mættu þangað var Hlín handtekin þar sem hún var að sækja töskuna og Malín skömmu frá þar sem hún beið eftir systur sinni í bílnum.
Malín hefur í samtali við Vísi neitað því að hafa skipulagt fjárkúgunina gegn forsætisráðherra og segist hafa blandast inn í atburðarásina vegna fjölskyldutengsla.