Skoðun

Skýrar reglur eru forsenda sáttar

Hörður Arnarson skrifar

Rammaáætlun er, að mati okkar hjá Landsvirkjun og flestra annarra, forsenda þess að sátt náist um nýtingu og vernd landsvæða gagnvart orkuvinnslu á Íslandi. Vega þarf saman það sem vinnst og það sem glatast við nýtingu þeirra óviðjafnanlegu endurnýjanlegu orkuauðlinda sem við Íslendingar erum svo lánsamir að búa að. Landsvirkjun styður heilshugar við markmið rammaáætlunar.



En til þess að þessi sátt náist með rammaáætluninni verða reglur um hana að vera skýrar. Við hjá Landsvirkjun höfum ítrekað sett fram þá skoðun okkar, að þetta ferli þurfi að bæta. Þetta sögðum við strax á haustfundi okkar árið 2014.



Reglurnar hafa ekki lagastoð

Núgildandi starfsreglur verkefnisstjórnar um rammaáætlun komu seint fram – í lok maí 2015 – þegar verkefnisstjórnin hafði starfað í um tvö ár. Þessar nýju reglur fóru ekki í opinbert umsagnarferli og að mati Landsvirkjunar hafa þær ekki lagastoð og beinlínis brjóta í bága við fyrirmæli laga um verndar- og nýtingaráætlun.



Athugasemdir Landsvirkjunar hafa aldrei lotið að neinu öðru en því að gera starfsreglurnar skýrari og í samræmi við lög. Landsvirkjun hefur aldrei farið fram á að svigrúm verkefnisstjórnar til að skipa virkjunarkostum í verndar-, bið- eða nýtingarflokk yrði takmarkað.



Hins vegar telur Landsvirkjun ótvírætt, og styðst við lögfræðiálit í þeim efnum, að það sé Orkustofnun sem ákveði hvaða virkjunarkostir séu nægilega skilgreindir til þess að verkefnisstjórn taki þá til umfjöllunar, samkvæmt 2. mgr. 9. gr. laga um verndar- og orkunýtingaráætlun nr. 48/2011.



Verkefnisstjórn getur þar af leiðandi ekki, og það er kjarni málsins, hafnað að taka virkjunarkost til umfjöllunar sem Orkustofnun telur nægilega skilgreindan til umfjöllunar, enda er verkefnisstjórn ráðgefandi lögum samkvæmt. Hún hefur ekki völd til að taka slíka stjórnvaldsákvörðun enda skortir alla stjórnsýslulega umgjörð um hana til þess.



Fjölmargar ábendingar

Landsvirkjun gerði grein fyrir þessum sjónarmiðum með bréfi til umhverfis- og auðlindaráðherra þann 17. ágúst 2015. Í svarbréfi frá ráðherra í desembermánuði kom fram að starfsreglurnar væru í endurskoðun, í ljósi þeirra athugasemda sem fram hefðu komið. Þar var ekki einungis um að ræða athugasemdir Landsvirkjunar, heldur fjölmargar ábendingar hinna ýmsu aðila, meðal annarra Alþingis. Endurskoðaðar starfsreglur voru svo lagðar fram og óskað eftir athugasemdum núna í byrjun febrúar.



Það er von okkar að endurskoðaðar starfsreglur stuðli að þeirri nauðsynlegu sátt sem þarf að ríkja um rammaáætlun, þannig að hún nái því markmiði sínu að miðla málum á hlutlægan hátt í málefnum orkunýtingar og náttúruverndar í íslensku samfélagi og sé í samræmi við gildandi lög.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×