Í síðasta þætti af Matargeði Evu lagði ég sérstaka áherslu á sjávarfang og eldaði meðal annars þennan gómsæta lax í sítrónu- og smjörsósu.
Ofnbakaður lax í sítrónu- og smjörsósu
800 g beinhreinsað laxaflak með roði
Salt og pipar
1 sítróna
5-6 msk smjör
Ólífuolía
1 askja kirsuberjatómatar
1 stór tómatur
1 rauðlaukur
Balsmikgljái
Ólífuolía
Handfylli basilíka
Salt og nýmalaður pipar
Aðferð: Leggið laxaflakið í eldfast mót, kryddið til með salti, pipar og nýrifnum sítrónuberki.
Sáldrið ólífuolíu yfir og smjöri. Bakið við 180°C í 10-12 mínútur.
Á meðan fiskurinn er í ofninum útbúið þið einfalt tómatasalat.
Skerið kirsuberjatómata, rauðlauk og saxið basilíkuna mjög smátt. Blandið öllum hráefnum saman í skál og kryddið til með salti og pipar. Hellið ólífuolíu og balsamikgljáa yfir, leyfið salsainu að standa inn í kæli áður en þið berið það fram með laxinum.
Þegar laxinn er tilbúinn færið þið hann á disk og leggið salsa yfir. Berið strax fram og njótið vel.
Missið ekki af Matargleði Evu öll fimmtudagskvöld á Stöð 2.
Æðislegur lax í sítrónu- og smjörsósu
