Bergþór Pálsson söngvari, Guðmundur Franklín Jónsson athafnamaður og séra Vigfús Bjarni Albertsson eru allir hættir við forsetaframboð eftir ákvörðun forsetans í gær.
Þú sagðir að þú teldir að það væru einhverjir aðrir Íslendingar sem væru jafn hæfir og þú til að gegna embættinu en er það ekki svo að þeir stíga mun síður fram og gefa kost á sér ef að þú ætlar að sitja áfram eða gefa kost á þér til endurkjörs? „Það hefur alltaf verið þannig í forsetakosningum á Íslandi að hver og einn sem stígur það alvarlega skref að gefa kost á sér til þessa embættis og leitar eftir umboði þjóðarinnar til að gegna þessu valdamikla embætti á örlagatímum, hann gerir það bara upp við sjálfan sig,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson.
Þrátt fyrir þessi svör forsetans er engum vafa undirorpið að sú ákvörðun hans að gefa kost á sér til endurkjörs hefur mikil áhrif á afstöðu annarra kandídata.

Guðni Th. Jóhannesson sagnfræðingur var að íhuga að gefa kost á sér og var raunar kominn á fullan skrið við undirbúning framboðs. Hann hafði gert ráðstafanir vegna sjónvarpsþátta um embætti forsetans og forsetakosningarnar, þar sem hann var viðmælandi, ef þátttaka hans hefði verið ósamrýmanleg framboði. Þá hafði verið til skoðunar að flýta útgáfu bókar hans um forsetaembættið, sem kemur út á næstunni hjá Forlaginu.
Ljóst er að ákvörðun Ólafs breytir þessari stöðu.
„Það þarf mikið að gerast til þess að ég bjóði mig fram gegn sitjandi forseta,“ sagði Guðni í Íslandi í dag í gær. Hann hefur hins vegar ekki aftekið framboð með öllu.
Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Árnastofnunar, hafði verið sterklega orðuð við forsetaframboð. Hún sagðist í samtali við fréttastofuna hafa stefnt að því að bjóða sig fram en í ljósi ákvörðunar forsetans í gær ætli hún að taka nokkra daga til að fara yfir stöðuna.
Sjá má ítarlegt viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson hér fyrir neðan.