Hermann Hreiðarsson hættur með Fylki Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 8. október 2016 20:24 Hermann Hreiðarsson við stjórnvölin hjá Fylki vísir/valli
Hermann Hreiðarsson hefur hætt þjálfun knattspyrnuliðs Fylkis sem féll úr Pepsi-deild karla í sumar. Fylkir sendi út tilkynningu þess efnis rétt í þessu. Stjórn knattspyrnudeildar Fylkis og Hermann sendu sameiginlega út fréttatilkynningu þar sem segir að það hafi verið sameiginleg ákvörðun stjórnarinnar og Hermanns að hann skildi láta af störfum sem þjálfari liðsins. Fylkir var í fallsæti nær allt tímabilið og féll að lokum í síðustu umferðinni þegar liðið tapaði fyrir KR á útivelli 3-0. Hermann tók við liðinu á miðju tímabili í fyrra en liðið náði sér ekki á strik undir hans stjórn í sumar og leikur í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð.Fréttatilkynning Fylkis: Knattspyrnudeild Fylkis og Hermann Hreiðarsson hafa sameiginlega komist að samkomulagi að hann láti að störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins. Hermann tók við liðinu á miðju tímabili í fyrra. Knattspyrnudeild Fylkis langar að þakka Hermanni fyrir hans framlag til félagsins en hann hefur verið frábær félagsmaður og gert margt gott fyrir félagið. Knattspyrnudeild Fylkis óskar Hermanni velfarnaðar í framtíðinni. Hermann vill koma á framfæri þökkum, þá fyrst og fremst til leikmanna, stjórnar og þjálfarateymis fyrir frábært samstarf. Tímabilið hafi ekki endað eins og til var ætlast en umgjörð og stuðningur hafi verið til fyrirmyndar. Fylkir er frábær klúbbur sem á heima í efstu deild og með stuðning leikmanna, stjórnar og síðast en ekki síst stuðningsmönnum félagsins þá verður félagið komið aftur þangað áður en langt um líður. Baráttukveðja, Hermann Hreiðarsson
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Þórir ráðinn til HSÍ Handbolti „Gætum ekki verið spenntari að koma aftur til Íslands“ Fótbolti Tímabilinu líklega lokið hjá Orra Fótbolti Leggur til bíl ef félagið ákveður að ræna Antony Fótbolti Segir sína menn þurfa að vera í „meistara ásigkomulagi“ Körfubolti „Þetta var ákvörðun sem ég þurfti að taka“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Grindavík - Stjarnan 95-92 | Rosalegasta endurkoma síðari ára Körfubolti „Þeir vilja náttúrulega fleiri leiki líka“ Körfubolti „Kóngurinn á Íslandi, DeAndre Kane, bjargaði okkur“ Körfubolti Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Handbolti Fleiri fréttir Fyrsti deildarsigur Brøndby á árinu Þriðja jafntefli Düsseldorf í röð en umspilið enn í augsýn Karólína lagði upp sigurmark Leverkusen Tímabilinu líklega lokið hjá Orra „Þetta var ákvörðun sem ég þurfti að taka“ „Gætum ekki verið spenntari að koma aftur til Íslands“ Leggur til bíl ef félagið ákveður að ræna Antony De Bruyne sá til þess að meistararnir sluppu fyrir horn gegn Úlfunum „Finnst þessir fyrstu tveir leikir hræðilegir“ Sjáðu mörkin úr öruggum Evrópusigrum United og Spurs Eigandi Chelsea þekkti ekki Ruud Gullit Juventus-parið hætt saman Draumaendir Bjarka á ferlinum: „Loksins fann ég þjálfara sem virkilega skildi mig“ Fagnaðarlæti Púlara mældust á jarðskjálftamælum Beckham fimmtugur í dag Kenndi dómaranum um eftir tap Athletic Bilbao fyrir United Glódís Perla eftir að tvennan var tryggð: „Langt síðan síðast“ „Annar fóturinn í úrslitaleikinn en ekkert er búið enn“ „Þetta var hið fullkomna kvöld“ „Þetta er ekki búið“ Meistaradeildardraumur Forest að breytast í martröð Allt small og Rauðu djöflarnir sjá úrslitaleikinn í hillingum Mark undir lok leiks gefur Norðmönnum von Albert byrjaði í naumu tapi í Andalúsíu Chelsea með annan fótinn í úrslit Jóhann Berg skoraði í mikilvægum endurkomu sigri Grindavík snýr aftur heim: „Heimavöllurinn okkar verður áfram tákn samkenndar“ Fyrirliðinn Guðrún og Ísabella Sara hýddar gegn Hammarby Glódís bikarmeistari með Bayern „Fannst ekkert gerast nema Fanndís væri að gera eitthvað“ Sjá meira