Rússar slíta sig frá Alþjóðlega glæpadómstólnum Samúel Karl Ólason skrifar 16. nóvember 2016 12:02 Rússar segja dómstólinn ekki vera óháðan, eftir að hann sagði innlimun Krímskaga vera stríðsaðgerð. Vísir/GEtty
Ríkisstjórn Rússlands hefur ákveðið að slíta sig frá Rómarsamþykktinni um Alþjóðlega sakamáladómstólinn (ICC). Það var ákveðið í dag, en á mánudaginn sagði dómstóllinn að innlimun Rússa á Krímskaga árið 2014 hefði verið stríðsaðgerð gegn Úkraínu. Rússar komu að stofnun dómstólsins árið 2002 og skrifuðu þeir undir sáttmálann árið 2000. Samkvæmt TASS fréttaveitunni, hefur Vladimir Putin, forseti, skipað utanríkisráðherra Rússlands að formlega tilkynna framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna ákvörðunina. Niðurstaðan varðandi Krimskaga var birt í skýrslu ICC á mánudaginn (bls. 35). Í tilkynningu á vef Utanríkisráðuneytis Rússlands (á rússnesku) segir að dómstóllinn sé ekki óháður og hafi ekki staðið undir væntingum. Því hafi þessi ákvörðun verið tekin. Undanfarin misseri hafa nokkrar Afríkuþjóðir lýst yfir vilja sínum og ætlunum til að slíta sig frá ICC. Meðal þeirra eru Suður-Afríka og Burundi. Ríkisstjórnir þeirra ríkja hafa sakað dómstólinn um að einblína á Afríku.
Búrúndí Mest lesið Engar reglur á Íslandi um hve mörg börn sæðisgjafar megi eignast Innlent Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbrigðum“ Innlent Morðhótunum í garð kvenna fari fjölgandi Innlent Rafmennt í samstarf og kaupir eignir þrotabúsins Innlent Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Erlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Hafa áhyggjur af því að sýn Veitna á Heiðmörk sé of þröng Innlent Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Erlent Kartöflugeymsla orðin að menningarhúsi Selfyssinga Innlent Háværar framkvæmdir stöðvaðar Innlent Fleiri fréttir Tveir létust í skotárás á háskóla í Flórída Fjórir létust þegar kláfferja hrapaði á Ítalíu Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Sjá meira