Hildur Rut Ingimarsdóttir hefur brennandi áhuga á hollri og einfaldri matargerð.
Hildur er sniðug í eldhúsinu og er sífellt að prófa sig áfram. Hún gaf nýverið út matreiðslubókina Avocado en í henni eru uppskriftir sem allar eiga það sameiginlegt að innihalda avocado-ávöxtinn.
Fyrir jólin bakar Hildur mikið af smákökum og deilir hún hér uppskrift að avocado- og súkkulaðismákökum sem bragðast vel.
Súkkulaðismákökur
1 avocado
3 msk. akasíuhunang
2 msk. hnetusmjör
1 tsk. vanilludropar
1 egg
2 msk. kakóduft
100 gr suðusúkkulaði, gróft saxað eða súkkulaðidropar
Hrærið saman avocado, hunangi, hnetusmjöri, vanilludropum og eggi þangað til að blandan verður silkimjúk. Gott er að nota hrærivél. Bætið kakóduftinu við.
Að lokum er súkkulaðinu hrært saman við með skeið.
Setjið deigið með teskeið á bökunarplötu þakta bökunarpappír.
Bakið við 180°C í 10 mínútur.
