„Áramótin eru alltaf vinsæl og það voru öll hótel hjá okkur uppbókuð þá fyrir frekar löngu síðan. Það jákvæða við þetta er að það er mjög nálægt því að vera uppbókað hjá okkur líka um jólin og það er nýtt þar sem við erum nú í fyrsta skipti með öll hótelin okkar opin yfir jólahátíðina. Við höfum undanfarin ár lokað þessum minni hótelum en eftirspurnin núna er þannig að við getum haft þau öll opin. Þá erum við líka með þrjá veitingastaði á þremur hótelanna sem verða opnir alla daga bæði um jól og áramót,“ segir Eva í samtali við Vísi.
Alls eru 478 herbergi á sex hótelum Center hótela í Reykjavík. Eva segir að algengara sé að fólk komi hingað í frí annað hvort um jólin eða áramót þó alltaf séu einhverjir sem eru yfir allar hátíðarnar. Ekkert lát virðist því vera á vinsældum Íslands sem áfangastaðar og segir Eva að áramótin 2017/2018 séu strax orðin þéttbókuð hjá Center hótelum.

Yfir 3000 eignir eru skráðar til útleigu í Reykjavík á vefnum AirBnb. Ef slegnar eru inn dagsetningarnar 23. desember til 26. desember á vefinn kemur upp tilkynning um að lausar eignir (valið var „Allt heimilið“) í Reykjavík á þessum dagsetningum séu að fyllast hratt og að einungis 10 prósent eigna séu lausar yfir jólin. Verðið að meðaltali fyrir nóttina er 256 dollarar eða um 29 þúsund krónur.
Miklu minna framboð er á eignum (valið var „Allt heimilið“) um áramót. Ef valdar eru dagsetningarnar 30. desember til 2. janúar kemur upp tilkynning um að aðeins tvö prósent heimila séu laus, eða 25 eignir. Meðalverðið fyrir nóttina er helmingi hærra en um jólin, eða 412 dollarar nóttin, sem gera um 48 þúsund krónur.
Til samanburðar er meðalverðið fyrir nóttina eina helgi í Reykjavík í janúar ef leigt er í gegnum AirBnb 162 dollarar eða um 18 þúsund krónur.