Teigurinn kíkti á æfingu hjá bæði KR og FH fyrir stórleik kvöldsins | Hasar í kvöld? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. maí 2017 15:30
KR tekur á móti FH í kvöld í stórleik fimmtu umferðar Pepsi-deildar karla og leikurinn var að sjálfsögðu í aðalhlutverki í þætti Guðmundar Benediktssonar á föstudagskvöldið. Teigurinn kíkti á æfingu hjá bæði KR og FH og ræddi við reynsluboltana Indriða Sigurðsson hjá KR og Atla Viðar Björnsson hjá FH.Leikur KR og FH hefst klukkan 20.00 á KR-vellinum og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport. „Ég sé bara hörku leik hjá tveimur góðum liðum sem eru að komast í gírinn og hrökkva í gang,“ sagði KR-ingurinn Indriði Sigurðsson. „Við erum að spila nýtt kerfi eða erum búnir að vera að spila það í allan vetur. Það er svo sem ekkert nýtt fyrir okkur. FH líka. Á meðan hin liðin, eins og Stjarnan og Valur, eru að keyra á hlut sem þau eru búnir að þekkja síðustu ár. Ég held að það sé eðlilegt að það taki smá tíma fyrir okkur að hrökkva í gang. Það mega ekki vera mikið fleiri leikir áður en við hrökkvum í gang því þá erum við farnir að missa af lestinni,“ sagði Indriði. „Þessi leikir eru virkilega skemmtilegir yfirleitt. Það er undantekningarlaust góð stemmning þegar þessi lið mætast og oft mikill hasar,“ sagði FH-ingurinn Atli Viðar Björnsson. „Það er ekki gott ef við lendum svona langt á eftir en það er bara maí og þá að við vinnum ekki á sunnudaginn þá er ekki himinn og jörð að farast. Þó að við vissulega viljum vinna og gerum okkur grein fyrir því að við þurfum að fara að taka inn einhver stig þá megum ekki spennan bogann það hátt að það sé allt búið ef leikurinn á móti KR vinnst ekki,“ sagði Atli Viðar. Það má sjá meira af viðtölunum við þessa tvo reynslubolta sem og spá þeirra Bjarna Guðjónssonar og Arnars Guðjónssonar um úrslit leiks KR og FH í spilaranum hér fyrir ofan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kenndi dómaranum um eftir tap Athletic Bilbao fyrir United Fótbolti Fagnaðarlæti Púlara mældust á jarðskjálftamælum Enski boltinn Glódís Perla eftir að tvennan var tryggð: „Langt síðan síðast“ Fótbolti Draumaendir Bjarka á ferlinum: „Loksins fann ég þjálfara sem virkilega skildi mig“ Íslenski boltinn Beckham fimmtugur í dag Enski boltinn Allt small og Rauðu djöflarnir sjá úrslitaleikinn í hillingum Fótbolti Juventus-parið hætt saman Fótbolti „Þetta var hið fullkomna kvöld“ Fótbolti „Annar fóturinn í úrslitaleikinn en ekkert er búið enn“ Fótbolti Dagskráin í dag: Allt undir í Smáranum Sport Fleiri fréttir Draumaendir Bjarka á ferlinum: „Loksins fann ég þjálfara sem virkilega skildi mig“ „Fannst ekkert gerast nema Fanndís væri að gera eitthvað“ „Hvað eru menn búnir að láta fífla sig út í?“ Vilja að Arna elti stóru systur: „Þær eru svakalegir íþróttamenn“ Sjáðu sjálfsmarkið sem skipti sköpum og fyrstu mörk Lífar Fylki og Keflavík spáð sigri í Lengjudeildunum Stokke í raðir Aftureldingar Bikarvörnin hefst gegn Fram „Held að Víkingar hafi keypt rangan framherja úr HK“ Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“ Stúkan um Stjörnuna: „Er algjört kjaftæði“ Arnór Borg í Vestra og Fram fann markmann Víkingur fær leikmann úr dönsku B-deildinni „Fannst við halda góðri stjórn á leiknum“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 7-1 | Upprúllun í Kópavogi Uppgjörið: Víkingur R. - Þróttur R. 0-1 | Óheppilegt sjálfsmark skilaði gestunum sigri Hin þaulreynda Anna Björk heim í KR Henríetta lánuð til Þór/KA Aftur heim í Stjörnuna eftir dvöl hjá FH Gylfi valdið mestum vonbrigðum Telma mætt aftur með gullhanskann í Breiðablik Fagnaði tvítugsafmæli í gær og lánaður til FH í dag Stærsti sigur KR á ÍA í deildarleik Sannfærðir um að FH verði í fallbaráttu „Jæja Heimir, þú verður að hjálpa mér að enda þetta vel“ Sjáðu vítin á Hlíðarenda, skrautleg mörk í Garðabæ og umdeilt mark Fram TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum „Þetta var erfitt og maður var aldrei rólegur“ Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“ „Ekki áhyggjuefni, þetta var bara hörkuleikur“ Sjá meira