Dress vikunnar hjá Glamour að þessu sinni er frekar haustlegt. Þó að veðrið sé enn mjög fallegt þá hefur aðeins kólnað í veðri, og svo erum við bara svo spenntar fyrir öllum fallegu haustflíkunum sem prýða munu verslanirnar í haust.
Buxurnar eru frá H&M og kosta 5.995 krónur.
Kimono-jakkinn er frá Lindex og kostar 6.499 krónur.
Stuttermabolurinn er frá Maison Labiche og fæst í Geysi. Hann kostar 7.800 krónur.
Blúndutoppurinn er frá Selected og kostar 4.290 krónur.
Skórnir eru úr Zöru og kosta 6.995 krónur.
Haustlegt dress vikunnar hjá Glamour
