
Lífeyrir aldraðra hækki strax í 320 þúsund kr. á mánuði eftir skatt
Ég tel vegna þeirrar uppsveiflu sem nú er í efnahagslífi þjóðarinnar að tímabært sé að gera myndarlega lagfæringu á kjörum aldraðra og öryrkja þannig að lífeyrisþegar þurfi ekki áfram að bera kvíðboga fyrir morgundeginum. Tillaga mín er þessi: Lífeyrir aldraðra hækki strax eftir kosningar í 320 þúsund krónur á mánuði eftir skatt (425 þúsund kr. á mán. fyrir skatt). Það er ekki unnt að lifa mannsæmandi lífi af lægri upphæð. Þessi upphæð er í samræmi við neyslukönnun Hagstofunnar en samkvæmt könnun á meðaltalsútgjöldum einhleypinga í landinu er þetta sú upphæð sem einstaklingar nota að meðaltali til neyslu. Skattar eru ekki inni í þeirri tölu hjá Hagstofunni og því er þessi upphæð í samræmi við lífeyri TR eftir skatt.
Síst of mikið fyrir eldri borgara
Einhverjum finnst ef til vill að það sé of mikið fyrir aldraða að hafa 320 þúsund kr. á mánuði í lífeyri frá TR eftir skatt, miðað við að þeir hafi engar aðrar tekjur. Það finnst mér ekki. Meðallaun í landinu eru 667 þúsund kr. á mánuði samkvæmt nýrri launarannsókn Hagstofunnar. Það er fyrir skatt. Alþingismenn hafa 1,2 milljónir kr. á mánuði og ráðherrar hafa 1,8 milljón á mánuði. Forsætisráðherra hefur rúmar 2 milljónir á mánuði. Þessar greiðslur eru fyrir utan aukasporslur og hlunnindi. Forstjórar og framkvæmdastjórar fyrirtækja hafa 1,6 millj. kr. á mánuði. Miðað við þessi háu laun er það ekki mikið þó eldri borgarar, sem lokið hafa vinnudegi sínum, hafi 320 þúsund á mánuði. Þetta eru þeir, sem skapað hafa þetta þjóðfélag.
Vantar fleiri hjúkrunarheimili
Enda þótt kjaramálin séu mikilvægust eru önnur mál einnig mikilvæg. Til dæmis vantar fleiri hjúkrunarheimili. Biðlistar eru langir eftir rými þar; erfitt fyrir eldri borgara að komast þar inn. Byggja verður fleiri hjúkrunarheimili. Einnig þarf að búa betur að heimahjúkrun svo eldri borgarar geti verið sem lengst heima. Heimahjúkrun er undirmönnuð og býr við fjárskort. Úr því þarf að bæta.
Höfundur er viðskiptafræðingur.
Skoðun

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar