Næsta uppfærsla á Chrome-vafra Google mun taka á myndböndum sem spilast sjálfkrafa á vefsíðum. Myndbönd munu aðeins spilast ef slökkt er á hljóðinu eða notandinn hefur sýnt áhuga á efni þeirra. Uppfærslan á að koma út síðar í þessum mánuði.
Sjálfspilandi myndbönd sem fara strax í gang þegar vefsíður eru opnaður fara í taugarnar á mörgum. Google segir að síðar á þessu ári standi til að bæta við valmöguleika til að slökkva á hljóði á einstökum vefsíðum.
Með nýju uppfærslunni, Chrome 64, byrja myndbönd aðeins að spilast ef notandinn smellir á síðuna eftir að hún opnast eða ef hann hefur áður spilað myndbönd oft á síðunni, að því er segir í frétt Ars Technica. Apple stefnir í sömu átt með næstu uppfærslu á Safari-vafranum. Í honum verður hægt að slökkva á sjálfspilandi myndböndum á tilteknum síðum eða alveg.
Þá stendur til að taka í notkun auglýsingasíu í Chrome sem lokar meðal annars á auglýsingar sem opnast í nýjum gluggum og sjálfspilandi myndböndum.
Google Chrome losar netverja við sjálfspilandi myndbönd
