Daniel Ricciardo á Red Bull sigraði þriðju Formúlu 1 keppni tímabilsins sem fram fór í Kína. Þetta var fyrsti sigur Riccardo á tímabilinu. Hann ók frábærlega og fór úr sjötta sæti í það fyrsta á aðeins tíu hringjum.
Í öðru sæti var Valtteri Bottas sem ekur fyrir Mercedes, en Ricciardo náði að taka fram úr honum á lokametrum kappakstursins.
Ferrari ökuþórinn, Kimi Raikkonen, endaði í þriðja sæti en hann byrjaði mótið annar á ráspól.
Sebastian Vettel náði sér ekki á strik í dag. Hann endaði í áttunda sæti eftir að hafa fengið tíu sekúnda refsingu fyrir að rekast utan í Max Verstappen. Vettel, sem ekur á Ferrari, hafði unnið tvær fyrsti keppnir tímabilsins og var fremstur á ráspól í morgun. Það hefur ekki gerst á þessari öld að sá ökuþór sem sigrar fyrstu tvær keppnirnar endi ekki upp sem heimsmeistari.
Eftir aksturinn í dag er Sebastian Vettel enn efstur í stigakeppni ökuþóra en forskot hans fer úr 17 stigum í níu stig. Mercedes ökuþórarnirLewis Hamilton og Valtteri Bottas koma næst á eftir Vettel í 2. sæti og 3. sæti.

