Bragi Jónsson, María Stefánsdóttir og Laxmi Adhikary hafa verið ráðin í yfirmannsstöðu hjá lyfjafyrirtækinu Alvotech. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Þar segir að Alvotech haldi áfram að bæta við sig sérfræðingum á Íslandi en frá áramótum hafi fyrirtækið auglýst 32 ný störf á Íslandi.
Hjá fyrirtækinu starfa nú um 250 vísindamenn. Alvotech er systurfyrirtæki alþjóðlega samheitalyfjafyrirtækisins Alvogen og höfuðstöðvar þess eru innan Vísindagarða Háskóla Íslands. Róbert Wessman er stofnandi Alvotech og Rasmus Rojkjaer er forstjóri fyrirtækisins.
Bragi Jónsson leiðir bókhaldsdeild Alvotech ásamt því að bera ábyrgð á uppgjöri og fjárhagseftirliti. Bragi er viðskiptafræðingur að mennt frá Háskóla Íslands og er með mastersgráðu í verkefnastjórnun (MPM). Bragi hefur yfir 25 ára reynslu af uppgjöri fyrirtækja og fjárhagseftirliti en síðastliðin 15 ár starfaði hann hjá Actavis sem fjármálastjóri framleiðslu- og sölufyrirtækis Actavis á Íslandi.
María Stefánsdóttir stýrir einni af lykilstoðum samfélagslegrar ábyrgðar Alvotech sem snýr að umhverfismálum og sér í lagi notkun á vistvænni orku við framleiðslu. María er menntaður iðnaðarverkfræðingur frá Háskóla Íslands og er með M.S. gráðu í umhverfisverkfræði frá University of Washington. Hún mun leiða öryggis-, heilsu- og umhverfismál hjá Alvotech. María hefur breiðan bakgrunn á sviði verkfræði en hún starfaði áður hjá verkfræðistofunni Mannviti og forverum þess í 11 ár áður en hún kom til starfa hjá Alvotech.
Laxmi Adhikary leiðir verkefnastjórnun þróunarverkefna fyrirtækisins. Laxmi hefur yfir 15 ára reynslu innan líftæknigeirans og hefur þar sinnt ýmsum hlutverkum og hefur því víðtæka reynslu innan virðiskeðju þróunarverkefna. Í störfum sínum hjá lyfjafyrirtækinu Biocon tók hún þátt í að leiða nokkur árangursrík verkefni við að setja á markað samheitalíftæknilyf.
Í tilkynningunni segir að Laxmi komi með mikilvæga reynslu og þekkingu til Alvotech. Laxmi er með doktorsgráðu í lífrænni efnafræði.
Reynsluboltar ráðnir til Alvotech
Kolbeinn Tumi Daðason skrifar

Mest lesið

Umræðan einkennist af rangfærslum um ofurhagnað
Viðskipti innlent

Starfsfólk truflað á tveggja mínútna fresti
Atvinnulíf

Kalifornía fjórða öflugasta efnahagsríki heims
Viðskipti erlent

Ísfélagið greiðir út tveggja milljarða arð
Viðskipti innlent

Gefur eftir í tollastríði við Kína
Viðskipti erlent


Ummæli Trumps um „meiriháttar lúser“ leggjast illa í markaðinn
Viðskipti erlent

Notendur þurfi að bregðast við vilji þeir ekki að gögn verði notuð
Viðskipti erlent

Ætlar að einbeita sér að Tesla eftir slæmt uppgjör
Viðskipti erlent
