Íslensku flugfélögin WOW og Icelandair rata bæði á hinn 72 flugfélaga lista AirHelp, sem opinberaður var á dögunum. Gengi þeirra er þó ólíkt, Icelandair ratar í 45. sæti listans en WOW rekur lestina og er í neðsta sætinu, því 72.
AirHelp veitir flugfélögum einkunn út frá þremur, jafn veigamiklum kvörðum. Sá fyrsti er stundvísi en í útskýringu á vefsíðu félagsins eru skekkjumörkin sögð 15 mínútur. Leggi 85 prósent flugferða tiltekins félags af stað á réttum tíma hlýtur félagið einkunnina 8.5 í þessum lið.
Næsti kvarði lýtur að gæði þjónustunnar sem flugfélögin veita. AirHelp segir að þessi liður byggi á margvíslegum gögnum, þar með töldum þúsundum athugasemda frá viðskiptavinum.
Þegar kemur að gæðum þjónustunnar hlaut Icelandair einkunnina 6,3 og WOW fékk 6,0. Aftur mjög sambærileg einkunn.
Síðasti kvarðinn, viðbrögð við kvörtunum, byggir á þremur þáttum að sögn AirHelp: Hversu hratt flugfélag bregst við ábendingum, hversu skilvirkt flugfélagið er að vinna úr kvörtunum og hvað það er síðan lengi að greiða út bætur til farþega.
Hér er hins vegar nokkur munur á einkunnum íslensku félaganna. Icelandair hlýtur einkunnina 8 fyrir viðbrögð sín við kvörtunum en WOW ekki nema 1,7. Aðeins Royal Jordanian Airlines og Easyjet fá lægri einkunn en WOW í þessum lið.
Heildareinkunn Icelandair er 7,36 en WOW hlýtur heildareinkunnina 5,04 - sem er sú lægsta af flugfélögunum 72.
Bestu flugfélögin, út frá þessum þremur kvörðum AirHelp, eru Qatar Airways sem fær 9,08 í heildareinkunn, Lufthansa með 8,57 og Etihad Airways sem hlaut 8,3.
Með því að smella hér má nánar fræðast um mat AirHelp. Listann í heild sinni má svo nálgast hér.