Geimförin tvö verða þó í rauninni eitt geimfar þar til það kemur til Merkúr.
Annar hluti geimfarsins var smíðaður af ESA og heitir Mercury Planetary Orbiter. Það ber ellefu rannsóknartæki og er ætlað að rannsaka plánetuna sjálfa. Hitt heitir Mercury Magnetospheric Orbiter og var smíðað af Geimvísindastofnun Japan. Því er ætlað að rannsaka segulsvið plánetunnar.
Ferðalag BepiColombo er þó langt frá því að vera einfalt. Samtals mun geimfarið fara um níu milljarða kílómetra á sjö árum, áður en það kemst rétta sporbraut um Merkúr. Því verður flogið einu sinni í kringum jörðina, tvisvar sinnum í kringum Venus og alls sex sinnum í kringum Merkúr. Allt í allt mun BepiColombo fara 18 sinnum í kringum sólina á sjö árum.
Áætlað er að ferðinni ljúki árið 2025. Til stendur að skjóta geimfarinu á loft klukkan korter í tvö í nótt og má fylgjast með geimskotinu í beinni útsendingu hér á vef ESA.
Upplýsingar um ferðalagið má sjá á myndinni hér að neðan.

Undanfarna mánuði hafa starfsmenn ESA unnið hörðum höndum að því að æfa ferðalag BepiColombo. Þeir telja geimferð þessa vera eina þá erfiðustu sem ESA hefur komið að. Merkúr er svo nálægt sólinni að það mun reynast erfitt að koma í veg fyrir að geimfarið festist í þyngdarafli hennar.
Því þarf að senda geimfarið svo marga hringi í kringum Venus og Merkúr áður en sporbrautin næst. Það er til að hægja á geimfarinu svo það þjóti ekki í til sólarinnar.

Geimfarið mun skoða yfirborð Merkúr, innri hluta plánetunnar, segulsvið og fleira. Þar að auki felur geimferðin í sér rannsókn af afstæðiskenningu Albert Einstein.
