Á síðustu árum hef ég sótt nokkrar ráðstefnur og aðrar pólitískar samkomur víðsvegar um Evrópu. Þegar fólk kemst að því hvaðan ég kem er fyrsta spurningin gjarnan “Af hverju er Ísland ekki í Evrópusambandinu?” Ég reyni yfirleitt að svara eftir bestu getu en mér hefur samt aldrei tekist að koma með neitt sérlega sannfærandi svar. Enda á ég sjálfur erfitt með að skilja af hverju.
Aðild að Evrópusambandinu er alls ekki einhver töfralausn sem kæmi til með að kippa öllum okkar vandamálum í lag, en það er ekki nokkur spurning að kostirnir við aðild eru bæði fleiri og vega þyngra en gallarnir. Möguleikinn til þess að losa okkur við sveiflugjarnan og óstöðugan gjaldmiðil og taka upp Evruna er tvímælalaust einn af stærri kostunum. Það að geta haft áhrif á alla þá löggjöf sem við innleiðum hvort sem er vegna aðildar okkar að evrópska efnahagssvæðinu vegur líka þungt. Sem og aðild að yfirgripsmiklu styrkjakerfi sambandsins og samstarfsverkefnum t.d. á sviði samgangna, menningar, landbúnaðar og ungmennastarfs. Evrópusambandið hefur líka, í krafti stærðar sinnar, meira bolmagn til þess að gera góða og yfirgripsmikla fríverslunarsamninga en nokkurt ríkjanna þar inni, og töluvert betri samninga en Ísland á kost á eitt á báti.
Það sem mér þykir þó vega þyngst er hugsjónin sem dreif stofnun sambandsins áfram. Hugsjónin um frið innan Evrópu, um frjáls viðskipti milli Evrópulanda, um frjálslynt opið samfélag byggt á grunngildum um lýðræði, frelsi, mannréttindi, virðingu og jafnrétti. Náið samstarf byggt á grunnstoðum fjórfrelsisins, frjálsri för fólks, fjármagns, varnings og þjónustu. Við eigum heima í slíku samstarfi.
Í heimi þar sem hugmyndafræðileg átök milli lýðskrumara, fasista, einangrunnar- og þjóðernissinna annars vegar og frjálslyndra, alþjóðlega þenkjandi lýðræðissinna hins vegar eru stigvaxandi hljótum við að vilja vera í seinni fylkingunni. Við hljótum að vilja vera með Macron, Merkel og Trudeau í liði frekar en Trump, Pútín, Orban og Salvini. Skýrasta leiðin til þess er aðild að Evrópusambandinu og metnaðarfull þátttaka í stefnumótun þess.
Í Evrópu eru 27 lönd sem eiga landfræðilega, efnahagslega og menningarlega samleið sammála um að náið samstarf þeirra á milli sé besta leiðin til að ná árangri, tryggja góð lífskjör fyrir íbúa þeirra, áhrif á alþjóðavettvangi til frambúðar og framgang friðar, lýðræðis og annara frjálslyndra gilda innan álfunnar. Af hverju ekki Ísland?
Höfundur er alþjóðafulltrúi Uppreisnar: Ungliðahreyfingar Viðreisnar

Af hverju ekki Ísland?
Skoðun

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar