„Þetta var skoðað á sínum tíma, var persónuleg gjöf til hans. Löngu búið að vera í ferli, kom upp rétt eftir að hann hætti og borgin tekur orð Jóns Gnarr trúanleg um að þetta hafi verið persónuleg gjöf. Er ekki í neinu ferli hjá borginni og stendur ekki til að kalla eftir því að fá verkið til baka,“ segir Bjarni.
Sómi Jóns
Eftir að Fréttablaðið greindi frá því að myndin sem Jón Gnarr hlaut að gjöf frá hinum heimsþekkta listamanni væri komin heim í stofu til Jóns, en hún hékk lengi uppi í Ráðhúsi Reykjavíkur, nánar tiltekið á skrifstofu borgarstjóra samkvæmt skilyrðum sem listamaðurinn setti þá er hann gaf borgarstjóra verkið, hefur þetta verið til umræðu í netheimum. Jón lítur svo á að um persónulega gjöf til sín sé að ræða en um það er deilt.
Ólga vegna málsins í netheimum
Borgarfulltrúi Viðreisnar, Pawel Bartozek, segist ekki deila þeirri skoðun Jóns að um persónulega gjöf geti verið að ræða. „Gjafir sem maður fær meðan maður er kjörinn fulltrúi eru gjafir sem ætti að tilkynna, hið minnsta. Það geri ég,“ segir Pawel meðal annars á Facebooksíðu Einars Steingrímssonar stærðfræðings sem er þeirrar skoðunar að fráleitt sé að Banksy hefði gefið Jóni verkið, það hljóti að tengjast því embætti sem Jón gegndi. Pawel segir borgina miða við gjafir að verðmæti 50 þúsund krónur en sjálfur skráir hann allt sem hugsanlega getur flokkast undir hagsmunatengsl.Svo eru þeir sem telja þessa umræðu beinlínis óviðeigandi. Meðal þeirra eru Guðmundur Andri Thorsson þingmaður Samfylkingar sem telur, í stuttum pistli á sinni Facebooksíðu, að um vandlætingu sé að ræða, magnað upp af óvildarmönnum Jóns. Fjölmargir hafa tekið undir með Guðmundi Andra að um ómerkilega aðför að Jóni sé að ræða.
Ýmsum sárnar fyrir hönd Jóns
Jón sjálfur hefur greint frá því hvernig málið horfir við sér í ítarlegum pistli á Facebook. Þar segir hann í athugasemd að umræðan hafi komið illa við sig, svo mjög að hún sló hann nánast út af laginu gagnvart afmælissýningu hans í Hörpu Eldborgarsal – Ég var einu sinni nörd.
Munur á plakati og eftirprentun
Ef litið er hjá siðareglum borgarinnar og hvernig ber að umgangast gjafir kjörinna fulltrúa; hvaða reglur eiga um það að gilda, þá er önnur spurning sem að þessu snýr sem er sú um hvers konar verk er að ræða? Er um eftirprentun eða plakat? Banksy er fyrst og fremst þekktur sem götulistamaður sem hefur einkum gert graffití á veggi stórborga sem vakið hafa mikla athygli. Enginn veit hver Banksy er og hefur það orðið til að skapa honum goðsagnakennt yfirbragð; enginn veit hvar og hvenær verk eftir hann birtast. En, auk þess hefur hann gefið út eftirprentanir af þeim verkum sem seljast fyrir háar upphæðir. Svo eru til fjöldaframleidd plaköt. Á þessu tvennu er munur, sá að eftirprentanir eru gefnar út í takmörkuðu upplagi og stundum áritaðar af listamanninum. Plakötin ekki. Ekki er gott að glöggva sig á þessu og alls ekki í tilfelli huldumannsins Banksy. Hér má lesa sig betur til um það.Þeirri spurningu hvort um plakat eða eftirprent hvað varðar mynd Jóns er að einhverju leyti ósvarað. Ekki vegna þess að menn vilji ekki trúa Jóni þegar hann segir að í raun sé um ódýrt plakat sé að ræða, og að það sé þá forvitnilegt út af fyrir sig að Banksy hafi haft fyrir því að sent Jóni plakat sem kaupa má á netinu fyrir nokkra dollara þá er Jón falaðist eftir Banksy-verki, heldur vegna þess að ekki gætir samræmis í því hvernig Jón hefur talað um verkið.

Einstakt verk eða ódýrt plakat?
Jón lýsir því að Banksy hafi gefið sér verkið, eftir að hann kom skilaboðum þess efnis á framfæri við listamanninn að hann vildi gjarnan eignast verk eftir hann. Jón segist hafa óskað eftir þessu tiltekna verki og borist svar, þar sem það skilyrði var fram sett að verkið myndi hanga á vegg borgarstjóraskrifstofunnar. Jón segist hafa fengið verkið sent nokkrum mánuðum síðar. Reyndar var upplagið á þrotum þannig að það þurfti að útbúa nýtt verk, teikna nýjan blómvönd og fáir hafa átta sig á því hversu einstakt það er.„And then I got it sent months later. Actually, it was out of print, so we had to make a new—uh, draw a new flower bouquet—so if you compare this one to the original, they are different flowers… Very few people realize the uniqueness of this.“
Um helgina segir Jón hins vegar: „Þetta er ekki orginal verk eftir Banksy heldur eftirprentun. Hún er ekki einu sinni merkt listamanninum. Þetta er í rauninni bara plaggat. Ég borgaði ekkert fyrir það nema einhvern 50.000 kall fyrir að setja það á álplötu. Það er hægt að kaupa svona á netinu fyrir smápeninga.“ Og seinna í pistli sínum ítrekar hann þetta: „Þetta er bara plaggat sem ég fékk kurteysislegt leyfi frá listamanninum sem gerði það bara af því að ég ber svo mikla virðingu fyrir honum. En þetta er samt bara plaggat“.
Jón var ekki fáanlegur í viðtal við fréttastofu nú í morgun þegar eftir því var leitað. Sagðist myndi tjá sig á Facebook, ef hann teldi ástæðu til.