Ásdís fagnaði því með því að skella sér út á æfingu í vetarkuldanum og birti myndband af sér við það að gera sérstaka æfingu.
Ásdís sést þar hamra dekk í frostinu og undir myndbandinu stendur síðan.
„It's not always glamorous and often cold but it gets done!“ eða upp á íslensku „Ekki alltaf sveipað einverjum dýrðarljóma og oft mjög kalt en það skilar árangri.“
Ásdís hefur verið ofarlega á heimslistanum í spjótkasti í mörg ár og hefur keppt á fjölmörgum stórmótum. Nú síðast á EM í Berlín síðastliðið sumar.
Ásdís var valin besta frjálsíþróttakona ársins fremur en spretthlauparinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir sem varð bæði Evrópumeistari unglinga og Ólympíumeistari unglinga á árinu.
Þetta fróðlega myndband með innsýn inn í æfingar Ásdísar má sjá hér fyrir neðan.