Þar fer hún hörðum orðum um þá Ólaf og Karl Gauta sem gagnrýnt hafa stjórnunarhætti Flokks fólksins að undanförnu, ásamt Halldóri Gunnarssyni. Sakaði Karl Gauti Ingu meðal annars um óeðlilega fjármálastjórn á dögunum.
„Þeir komu að krásunum sem aðrir höfðu matreitt ofan í þá í boði Flokks fólksins og fengu 1. sæti, hvor í sínu kjördæmi,“ segir Inga um aðdraganda þess að þeir gengu í flokkinn haustið 2017, skömmu fyrir þingkosningar.

Segir þremenninganna í hefndarleiðangri
Hvað viðkemur fjármálastjórn flokksins segir Inga að hreyfingin hafi lengst af barist í bökkum fjárhagslega og að Inga, sem formaður, hafi í samráði við stjórn, þurft að gæta ítrustu ráðdeildar. Það hafi tekist farsællega enda sé flokkurinn nú skuldlaus.Segir hún að reikningar flokksins hafi aldrei hlotið athugasemdir endurskoðenda auk þess sem þeir hafi verið opnir stjórnarmönnum, þar með talið Karli Gauta. Þá hafi Halldór verið með eftirlitsheimild og aðgang að heimabanka flokksins. Hann hafi meðal annars undirbúið ársreikninga flokksins.
„Það er aumt að horfa upp á Halldór, Karl Gauta og Ólaf í hefndarleiðangri nú þar sem þeir reyna að sá fræjum efasemda og tortryggni um fjármál Flokks fólksins um leir og þeir vita betur,“ skrifar Inga.
Segir hún að þremenningarnir hafi þrýst á um að hún myndi afsala sér prókúru í hendur þeirra. Það hafi stjórn flokksins hins vegar ekki tekið í mál.
„Enda alla farið að gruna þessa menn um græsku færi svo að þeir fengju vald yfir fjármunum flokksins,“ skrifar Inga.

Erfiðar vikur að baki
Þá segist hún ekki hafa komið nálægt því að sonur hennar væri ráðinn í starf hjá flokknum. Aðrir hafi viljað fá hann til verkefna fyrir flokkinn og að hún hafi vikið af fundi þegar ákvörðun um ráðninguna var tekin.Þá segir Inga að síðustu vikur hafi verið erfiðar.
„Sömuleiðis hef ég fundið á eigin skinni að það er gömul saga og ný, bæði í pólitík og atvinnulífi, að til eru karlar sem eiga afar erfitt með að sæta því að hlíta stjórn sterkrar konu. Þeir láta engin tækifæri ónotuð til að freista þess að grafa undan slíkum konum. Gera þær tortryggilegar með baknagi, dylgjum, ósannindum og hreinni illmælgi; hatri og heift“.
Þetta sé forarpyttur sem umræðurnar sem fóru fram á barnum Klaustri, sem Karl Gauti og Ólafur tóku meðal annars þátt í, hafi sprottið upp úr.
„Þar sátu litlir karlar sem hötuðust út í konur, þar á meðal hina hræðilegu Ingu Sæland.“