Ferðalangar á leið til Reykjavíkur þurftu að gera sér það að góðu að bíða í Borgarnesi eftir að ákveðið var að loka Vesturlandsvegi, á milli Mosfellsbæjar og Þingvallavegs, vegna veðurs í kvöld. Höfðu margir verið á faraldsfæti þessa helgi og meðal annars brugðið sér á skíði til Dalvíkur.
Ákváðu þónokkrir ökumenn að bíða á Borgarfjarðarbrú eftir að Vesturlandsvegur yrði opnaður og myndaðist þá afar löng röð bíla á brúnni. Er talið að á annað hundrað bílar hafi verið á brúnni þegar mest var.
Opnað var á ný fyrir umferð um Vesturlandsveg á ellefta tímanum í kvöld eftir að hafa verið lokað um kvöldmatarleytið. Streyma nú ferðalangar aftur til höfuðborgarsvæðisins.
Viðbragðsaðili sem var að störfum á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi sagði við fréttastofu fyrr í kvöld að blindbylur hefði verið á svæðinu. Tvær rútur og sjúkrabíll fuku af veginum fyrr í kvöld.
Gríðarlöng bílaröð myndaðist á Borgarfjarðarbrú

Tengdar fréttir

Tvær rútur og sjúkrabíll út af á Kjalarnesi
Ekki alvarleg slys á fólki samkvæmt fyrstu upplýsingum en veðrið er afar slæmt á vettvangi.

Færðu sig yfir á aðra hlið rútunnar til að varna því að hún ylti
Hrósa björgunarsveitum Íslands.