Einar Sturla Möinichen og aðrir aðstandendur Sushibarsins hafa tekið ákvörðun um selja Kringluútibú veitingastaðarins. Útibúið hefur verið starfrækt á Stjörnutorgi undir merkjum Sushibarsins Express undanfarin þrjú ár en þar áður var rýmið á forræði Osushi. Uppsett verð fyrir veitingaplássið eru 27 milljónir króna.
Einar segir í samtali við Vísi að ástæðan fyrir sölunni sé í raun sáraeinföld. Reksturinn hafi ekki lengur staðið undir sér og aðstandendur staðarins hafi tekið ákvörðun um að einbeita sér að öðrum öngum rekstursins, í stað þess að berjast fyrir áframhaldandi veru Sushibarsins á Stjörnutorgi. Einar og félagar reka jafnframt Sushibar á Suðurlandsbraut og Sakebarinn á Laugavegi. Þá standa þeir í ströngu þessa dagana við að standsetja rýmið sem áður hýsti útibú Sushibarsins á Laugavegi. Þær framkvæmdir hafa verið tímafrekari og um leið kostnaðarsamari en gert var ráð fyrir í upphafi, eins og Vísir greindi frá í úttekt sinni um stöðuna á „Draugavegi.“
Einar segir að leitað hafi verið að kaupendum að rýminu á Stjörnutorgi frá áramótum, en fyrst núna hafi það verið gert opinbert með formlegri fasteignaauglýsingu. Á þeim tíma hafi töluverður fjöldi áhugasamra sett sig í samband við Einar og spurst fyrir um möguleika rýmisins.

Einar segir að hugmyndir flestra þeirra hafi þó ekki hentað í plássið, það sé ekki aðeins lítið heldur einnig opið og á miðju Stjörnutorgi. Rýmið bjóði þannig ekki upp á fyrirferðamikla eldamennsku eða brasseringar, eins og ýmsir vonbiðlar hafi séð fyrir sér, en henti aftur á móti fullkomlega fyrir einfaldari matreiðslu. Nefnir Einar í því samhengi hvers kyns samlokugerð, súkkulaðisölu eða jafnvel sushilögun.
Þrátt fyrir að rekstur Sushibarsins hafi ekki gengið sem skyldi segir Einar að það sé ekki þar með sagt að veitingarekstur á Stjörnutorgi sé ómögulegur. Þvert á móti, Kringlan fái um fimm milljón heimsóknir viðskiptavina á hverju ári auk þess sem töluvert sé um að vera í hádeginu, þegar menntaskólanemar og aðrir starfsmenn Kringlusvæðisins fá sér að borða.
Þá sé jafnframt töluverð gerjun á Stjörnutorgi þessa dagana, en eins og Vísir hefur áður sagt frá stendur til að opna svokallaða mathöll í vesturhorni torgsins. Áætlað er að fyrstu veitingastaðirnir í mathöllinni opni í lok apríl.