Þetta segir Jóhannes sem var gestur í Bítinu í morgun til að ræða um stöðuna í ferðaþjónustugeiranum eftir að fréttir tóku að spyrjast af því að WOW air væri hætt starfsemi.
Jóhannes segir að árstíðasveiflan sé ennþá mjög mikil í ferðaþjónustunni. Fyrirtækin lifi í raun allt árið um kring á þeim tekjum sem þau afla sér yfir sumarmánuðina.
„Afkoma ferðaþjónustunnar á árinu og afkoma fyrirtækjanna - hvernig þeim gengur að lifa af árið og hvernig þau verða undirbúin fyrir næsta ár - veltur þá á því hvort það tekst að bjarga háönninni eins og hægt er þannig að við missum ekki hér fjöldann niður um það mikið sem þessar svörtustu spár hafa verið að sýna,“ segir Jóhannes sem telur að það sé gerlegt en það muni þó ekki verða að veruleika nema með sameiginlegu átaki allra sem eiga í hlut.
Jóhannes segir að útlitið hafi verið dökkt um skeið og því hafi það ekki komið honum neitt mikið á óvart að svona hafi farið að lokum fyrir WOW air.
Hann segir að nú sé þó komin niðurstaða í málið og brýnt að vinna úr þeirri stöðu sem upp er komin.
„Við vitum það að nú þegar eru fjölmörg fyrirtæki farin að fá fyrirspurnir frá sínum viðskiptavinum um hvað þetta þýði og nú náttúrulega skiptir öllu máli að hve miklu leyti, önnur flugfélög Icelandair og önnur flugfélög sem hingað fljúga, munu stíga inn í þetta rými sem myndast á markaðnum. Það þarf að koma strandaglópum til síns heima.“
Jóhannes segir Icelandair hafa stigið myndarlega inn í málið en bætir við að ríkisstjórnin þurfi að skoða hvort það sé eitthvað sem hún geti gert til að koma ferðaþjónustunni aftur í rétt horf sem allra fyrst svo áfallið verði sem minnst.