Raceep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, og flokkur hans AK, mun krefjast þess að kosið verði að nýju í Istanbúl sagði fulltrúi flokksins eftir að krafa hans um endurtalningu atkvæða í borginni var hafnað. Talningar á atkvæðum í sveitastjórnarkosningum sem fóru fram 31. mars síðastliðinn voru flokknum í óhag.
Frá þessu greinir Reuters á vef sínum.
Úrslit kosninganna voru á þá leið að CHP-flokkurinn sigraði með um 70.000 atkvæðum, sem mun binda enda á 25 ára stjórn AK-flokksins í borginni.
Frá kosningum hefur AK-flokkurinn óskað ítrekað eftir endurtalningu en kjörstjórnin (YSK) hefur hafnað óskum AK-flokksins um að telja að nýju í 31 kjördæma Istanbúl.
Samþykkt var að endurtelja atkvæði úr aðeins 51 kjörkassa sem voru dreifðir á milli 21 af 39 kjördæmum borgarinnar, sem flokkurinn sagði óskiljanlegt.
Krefjast nýrra kosninga eftir valdatap

Tengdar fréttir

Flokkur Erdogan missir völdin í höfuðborginni
Sveitarstjórnarkosningar fóru fram í Tyrklandi í gær.

Erdogan vill endurtalningu í Istanbúl
Forseti Tyrklands, Receep Tayyip Erdogan og flokkur hans AK, hefur óskað eftir því að atkvæði sem greidd voru í sveitastjórnarkosningunum í Istanbúl fyrir viku síðan verði talin að nýju.