Friðrik Atli Guðmundsson er umsjónarmaður vefsins Hluthafi.com þar sem ætlunin er að hópfjármagna endurreisn WOW air eða stofnun nýs lággjaldaflugfélags.
Þetta kemur fram á hluta vefsins þar sem fjallað er verndara hans, en þessum upplýsingum var bætt við vefinn nú í kvöld. Þar segir að „af einhverjum ástæðum, þá hafa fjölmiðlar óskað eftir að upplýst verði hverjir standi á bakvið Hluthafi.com.“
Er upplýst að um sé að ræða hóp einstaklinga sem sér að rekstur lággjaldaflugfélags í eigu Íslendinga sé raunhæfur kostur og vill að landsmenn taki sig saman til að endurreisa WOW air eða stofna nýtt lággjaldafélag sem sé eitt brýnasta hagsmunamál þjóðarinnar í dag.
„Þeir einstaklingar sem standa að gerð þessarar síðu og væntanlegs almenningshlutafélags hafa ekki starfað hjá WOW air og eru ekki tengdir félaginu á nokkurn hátt,“ segir á vefnum.
Eru þessir aðilar sagðir kostaðir af byggingafyrirtækinu Sólhúsi ehf. en stjórnarformaður þess fyrirtækis er Guðmundur Bjarni Yngvason. Sonur hans, Friðrik Atli Guðmundsson, er sagður umsjónarmaður vefsins.
Vísir hefur reynt að ná tali af Friðriki en án árangurs en rætt er við hann á vef Ríkisútvarpsins þar sem hann segir ágætan hóp manna standa að þessu átaki. Vill hann ekki gefa upp hverjir séu í þeim hópi en vonar að það muni skýrast á næstunni.
Skúli Mogensen, fyrrverandi forstjóri WOW air, hefur látið hafa eftir sér að hann kannist ekki við síðuna né þá sem standa að baki henni.
Umsjónarmaður Hluthafa stígur fram

Tengdar fréttir

Áskrifendum verður boðið á stofnfund nýs hlutafélags
Forsvarsmenn Hluthafa.com eru ekki tilbúnir til að koma fram undir nafni.

Skúli segist ekkert kannast við Hluthafa.com
Óska eftir hluthöfum vegna nýs lággjaldaflugfélags.

Huldufélag hefur söfnun fyrir WOW Air
Nafnlausir "hollvinir almennrar samkeppni“ standa fyrir vefsvæðinu hluthafi.com, þar er óskað eftir því að landsmenn taki sig saman til að endurreisa flugfélagið sáluga WOW Air eða stofna nýtt lággjaldaflugfélag.

„Fólk þarf að passa sig á svona“
Tölvuöryggissérfræðingur segir það ekki traustvekjandi að forsvarsmenn Hluthafa.com vilji nafnleynd.