Er niðurstaða dómsins sú að Isavia sé heimilt að hamla för flugvélarinnar TF-GPA frá Keflavíkurflugvelli á meðan gjöld tengd þeirri flugvél eru ógreidd en ekki vegna ógreiddra annarra gjalda WOW air við Isavia vegna flugvéla í eigu þriðja aðila. Umrædd gjöld vélarinnar sem deilan snýst um nema 87 milljónum krónum.
Lögmenn ALC túlka niðurstöðuna á þann veg að ALC þurfi að greiða 87 milljónir króna til að fá vélina afhenta en ekki þá tvo milljarða sem er heildarskuld WOW air við Isavia. Flugfélagið skuldaði greiðslur vegna fjölmargra flugvéla sem flugfélagið hafði á leigu.
ALC hafði þegar boðið 87 milljónir króna greiðslu til að fá vélina lausa að sögn Odds Ástráðssonar, lögmanns ALC en því hafi verið hafnað án rökstuðnings. Isavia verði að sækja hina peningana í þrotabú WOW air.
Oddur segir í samtali við fréttastofu að til skoðunar sé að kæra úrskurðinn og vísa honum til Landsréttar og sömuleiðis til eftirlitsstofnunar EFTA til að fá úr því skorið hvort um sé að ræða ólögmæta ríkisaðstoð.
Tekist var um málið í munnlegum málflutningi í Reykjanes í dag og var úrskurðurinn svo kveðinn upp klukkan 16. Úrskurðurinn er kæranlegur til tveggja vikna að því er fram kom í máli dómara við uppkvaðningu úrskurðarins.
Uppsöfnuð vanskil frá 2017
Hlynur Halldórsson, lögmaður Isavia, sagði við málflutninginn í dag að ALC hefði verið fullkunnugt að Isavia gæti kyrrsett flugvélar WOW ef flugfélagið stæði ekki skil á gjöldunum. Þá hafi ALC vitað eða mátt vita af fjárhagsvandræðum WOW air. Benti hann á að þegar slitnaði upp úr viðræðum WOW og Indigo Parters hafi forsvarmenn flugfélagsins hafið viðræður við stærstu kröfuhafa félagsins, meðal annars ALC, um að breyta kröfum sínum í hlutafé.Í greinargerð Isavia í málinu er lýst hvernig vanskil WOW air söfnuðust upp frá því í lok árs 2017 og að Isavia hafi hótað að beita kyrrsetningarheimildinni ef ekki kæmu fram raunhæfar áætlanir um uppgjör skulda. Í nóvember í fyrra gaf WOW air út yfirlýsingu um greiðsluáætlun sem miðaði að því að greiðslum yrði lokið í nóvember á þessu ári.
Flugfélagið skuldbatt sig jafnframt til þess að tryggja að ein flugvél yrði ávallt á Keflavíkurflugvelli sem trygging fyrir skuldinni.

Í reglum Isavia segi að félaginu sé óheimilt að innheimta ekki skuldir. Greiðsluáætlun WOW air hafi verið samkomulag um vanskil og að Isavia hafi farið langt út fyrir heimildir sínar með því að taka eign þriðja aðila sem tryggingu. Framganga Isavia í málinu væri valdníðsla af verstu sort.
Þá kom fram í máli ALC að fundargerð Isavia frá stjórnarfundi, sem haldinn var fjórum dögum áður en WOW air varð gjaldþrota, hafi verið rætt um frestun á því að beita heimildinni til kyrrsetningar. Ástæðan hafi verið sú að frestun gæti hugsanlega leitt til lakari stöðu félagsins við innheimtu ógreiddra gjalda ef félagið færi í þrot áður en henni yrði beitt.
Oddur sagði þetta sýna að forsvarsmenn Isavia hafi verið meðvitaðir um mögulegt heimildarleysi til þess að kyrrsetja vélina. Þá komi fram í fundargerðinni að stjórn Isavia hafi talið líklegt að kyrrsetning gæti haft neikvæð keðjuverkandi áhrif á aðra kröfuhafa sem myndi á endanum leiða til falls WOW air. Því hafi verið ákveðið að gera það ekki á þeim tímapunkti.