Á meðal þeirra sem aðstoðuðu við viðhaldið voru þau Hörn Halldórudóttir Heiðarsdóttir og Bjarni Karlsson en þeim var boðið að taka þátt í verkefninu eftir að hafa sótt um. Bæði hafa þau starfað sem landverðir og höfðu því bæði áhugann og reynsluna sem til þurfti.
Í samtali við Vísi segist Hörn hafa fallið fyrir eyjunum strax við komuna. Fólki sé tíðrætt um sterka náttúru Íslands en hún sé ekki síðri í Færeyjum þar sem fjöll og firðir eru sjáanlegir hvert sem farið er.
„Landslagið þarna er svo hrikalegt. Það er oft hlegið að því á Íslandi að það sé fáránlegt að fólk hafi búið á Íslandi og að þetta ætti bara að vera veðurathugunarstöð en í Færeyjum eru miklu erfiðari skilyrði,“ segir Hörn.

Sáu auglýsingu á Facebook og ákváðu að slá til
Hörn og Bjarni ákváðu að sækja um að taka þátt í verkefninu eftir að hafa séð auglýsingu á Facebook þar sem óskað var eftir sjálfboðaliðum. Líkt og áður sagði hafa þau bæði starfað sem landverðir í nokkur sumur og því var þetta kjörið tækifæri fyrir þau.„Við höfðum hvorugt komið til Færeyja áður þannig að þetta var mjög spennandi. Við ákváðum að slá til því okkur fannst þetta einstakt tækifæri og af einhverri ótrúlegri heppni komumst við inn í prógrammið og vorum einu Íslendingarnir.“

Mykines er vestasta eyja Færeyja, um tíu ferkílómetrar að stærð og þar hafa aðeins tíu manns fasta búsetu. Á eyjunni er að finna lunda- og súluvarp og var unnið að því að leggja stíga út í Mykineshólma til þess að beina ferðamönnum aðrar leiðir en í gegnum varpið.

Lærðu af reynslu Íslendinga
Verkefnið vakti mikla athygli, meðal annars hérlendis, og segir Hörn heimamenn hafa verið mjög hlynnta því enda hefur ferðamannafjöldi aukist um árlega um tíu prósent undanfarin ár. Þeir hafi horft til Íslands og viljað læra af okkar mistökum til þess að hlúa betur að náttúruperlum landsins.
„Þetta verkefni vakti svo mikla athygli víða, meðal annars hjá fólki á Íslandi sem dagsdaglega spáir kannski ekki mikið í þessum málum en það voru allir í kringum mig á þeirri skoðun að það þyrfti að ráðast í svipaðar aðgerðir á Íslandi.“
Sterk tenging Íslendinga og Færeyinga
Hörn hrósar Færeyingum í hástert og segir kynni þeirra við fólkið þar standa upp úr. Það sé sterk tenging milli þessara þjóða og þeir líti á okkur sem nokkurskonar fyrirmynd.„Við erum með sameiginlega menningararfleið, það eru sömu þjóðsögur, svipaðar sögur og dansar og svo náttúrulega tungumálið,“ segir Hörn og bætir við að samskipti við heimamenn hafi verið auðveld enda tungumálin nokkuð áþekk.
„Svo eru þau með ennþá verri mat en við,“ segir Hörn létt að lokum.
