
Sæmd Alþingis: Eitt faxið enn?
Fyrir allra sjónum
Það var ekki eins og eitthvað þessu líkt hefði aldrei gerzt áður. Drög að fyrstu kvótalögunum voru samin á skrifstofum LÍÚ og föxuð þaðan eins og Halldór Jónsson félagsfræðingur lýsti í ritgerð sinni „Ákvarðanataka í sjávarútvegi og stjórnun fiskveiða“ (Samfélagstíðindi 1990, bls. 99-141). Æ síðan hefur Alþingi setið og staðið fyrir allra sjónum eins og útvegsmenn hafa boðið. Og þó, samt ekki alveg. Útvegsmenn lögðu til að fiskveiðistjórnarlögin kvæðu á um að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu eign íslenzkra útvegsmanna, en því fengu þeir ekki að ráða þótt þeir hafi eigi að síður fengið að hirða frá öndverðu nær allan arðinn af sameignarauðlindinni í sjónum í boði Alþingis.
Hér birtist ein af ráðgátum okkar samfélags. Spillingin æðir áfram og dylst engum sjáandi manni lengur eins og rannsóknir Gallups, Transparency International o.fl. erlendra stofnana staðfesta rækilega. Samt hvílir ennþá þykkur leyndarhjúpur yfir ýmsu sem ætti að vera uppi á borðum. Eftirlaunagreiðslum úr opinberum sjóðum til fv. þingmanna og ráðherra er haldið leyndum. Lánum gömlu bankanna til þingmanna sem skulduðu bönkunum minna en 100 m.kr. hver við hrun er haldið leyndum. Innlögnum á og skattameðferð Panama-reikninga tveggja flokksformanna á Alþingi er haldið leyndum þótt þrjú ár séu liðin frá birtingu Panama-skjalanna. Hægt væri að lengja þennan lista. Fólkið í landinu stendur ráðalaust og lamað frammi fyrir spillingu og meintum lögbrotum sem látin eru fyrnast í hrönnum. Svipuð staða er nú uppi í Bandaríkjunum nema munurinn er sá að stjórnarandstaðan á Bandaríkjaþingi, saksóknarar og dómstólar leitast við að koma lögum yfir Trump forseta.
Í fyrstu grein fiskveiðistjórnarlaganna frá 1990 segir að nytjastofnar á Íslandsmiðum séu „sameign íslensku þjóðarinnar“. Þetta ákvæði hefur ekki dugað betur en svo í reynd að æ síðan hafa útvegsmenn látið eins og tillaga þeirra um að þeir eigi fiskinn í sjónum hafi orðið að lögum. Þess vegna m.a. sagði fólkið í landinu eftir hrun: Hingað og ekki lengra. Það hafði horft á Alþingi afhenda útvegsmönnum ókeypis aðgang að sameigninni í sjónum. Það hafði horft á Alþingi hafa svipaðan hátt á einkavæðingu gömlu bankanna. Fólkið í landinu heimtaði nýja stjórnarskrá til að rétta kúrsinn. Alþingi brást í byrjun vel við kalli almennings. Þúsund manna þjóðfundur 2010 ítrekaði kröfuna um nýja stjórnarskrá með ákvæði um auðlindir í þjóðareigu. Margar skoðanakannanir staðfestu að mikill hluti þjóðarinnar var hlynntur slíku ákvæði.
Þjóðaratkvæðagreiðslan 2012 leiddi í ljós stuðning 83% kjósenda við auðlindaákvæðið í frumvarpi Stjórnlagaráðs frá 2011.
Þrjú lykilatriði
Auðlindaákvæðið í frumvarpi Stjórnlagaráðs kveður á um þrjú grundvallaratriði.
(1) Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru „sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar“.
(2) Leyfi til afnota eða hagnýtingar auðlinda skal veita „gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn“.
(3) „Slík leyfi skal veita á jafnræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum.“
Orðalag ákvæðisins er reist á skýrum greinarmun á „þjóðareign“ og „ríkiseign“. Þjóðareign sameiginlegra náttúruauðlinda er ætlað að skylda núlifandi fólk til að varðveita þær af virðingu fyrir komandi kynslóðum. Ríkiseign veitir enga slíka tryggingu. Þjóðin er yfirboðari ríkisins. Með „fullu gjaldi“ er átt við fullt markaðsverð, þ.e. niðurfellingu þeirra forréttinda sem Alþingi hefur hingað til fært útvegsmönnum.
Ítrekuð ósvinna
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur nú lagt fram tillögu að auðlindaákvæði sem klúðrar öllum þessum lykilatriðum. Orðin „sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar“ hafa verið felld burt. Orðin „gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í senn“ hafa verið felld burt. Orðin „Slík leyfi skal veita á jafnræðisgrundvelli og þau leiða aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs forræðis yfir auðlindunum“ hafa verið felld burt. Í staðinn er bætt inn veiklulegu orðalagi: „gæta skal jafnræðis og gagnsæis“. Einnig er svo bætt inn í textann skírskotun til ríkiseignar líkt og í rússnesku stjórnarskránni.
Þessari tillögu forsætisráðherra um auðlindaákvæði er greinilega ætlað að löghelga óbreytt ástand gegn skýrum vilja fólksins í landinu. Þau hafa reynt þetta áður. Það var þegar stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis fól lögfræðingum að fara yfir orðalag auðlindaákvæðisins í frumvarpi Stjórnlagaráðs án þess að breyta því efnislega enda hafði þjóðaratkvæðagreiðslan 2012 þá þegar farið fram. Lögfræðingarnir sneru ákvæðinu samt á hvolf líkt og þeir hefðu fengið eitt faxið enn frá LÍÚ. Þingnefndin sá í gegnum ósvinnuna og setti upphaflegt orðalag Stjórnlagaráðs aftur á sinn stað. Þessi nýja tillaga þarf að hljóta sömu afgreiðslu. Auðlindaákvæði nýrrar stjórnarskrár á ekki að vera bara til málamynda.
Skoðun

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar