
Arfavitlausir blómatollar
Innflutningsverðið margfaldast
Óhætt er að kalla blómatollana ofurtolla. Þeir samanstanda annars vegar af 30% verðtolli og hins vegar stykkjatolli sem leggst á hverja einustu plöntu, sama hvort um er að ræða pottablóm eða afskorin blóm.
Þannig leggst á innflutt pottablóm 30% verðtollur og 200 króna stykkjatollur. Segjum að innflutningsverð pottaplöntu sé 300 krónur. Hún ber þá 290 krónur í toll og innflutningsverðið tvöfaldast því sem næst.
Á afskorin blóm leggst 30% verðtollur og auk þess 95 króna stykkjatollur á hvert blóm. Tíu túlipana búnt, sem kostar 600 krónur í innkaupum, fær á sig 1.130 krónur í toll, þannig að innkaupsverðið hartnær þrefaldast.
Þetta er nærtækasta skýringin á háu verði á blómum á Íslandi. Afskorin blóm í búntum, þ.e. sem blómaskreytir hefur ekki sett saman í vönd, eru tvö- til þrefalt dýrari en í nágrannalöndum okkar. Þessi vara, sem neytendur í nágrannalöndunum grípa nánast án umhugsunar með sér úr búðinni til að prýða heimili sitt, er lúxusvara á Íslandi.
Tollkvótarnir duga ekki
Stjórnvöld gefa tvisvar á ári út heimild til að flytja inn takmarkað magn af blómum á lægri tollum. Þá hefur ríkið af örlæti sínu gefið eftir stykkjatollinn og verðtollurinn situr eftir. Hins vegar er vaxandi eftirspurn eftir tollkvótanum – í ár eru umsóknir innflytjenda þrefalt það magn sem er í boði – og það þýðir að útboðsgjaldið, sem innflytjendur greiða fyrir að fá að flytja blómin inn, fer hækkandi. Fyrir síðari helming ársins er það 40-45 krónur á hvert afskorið blóm og 119-126 krónur fyrir hvert pottablóm, samkvæmt niðurstöðum útboðs sem birtar voru í vikunni. Það er farið að slaga vel upp í hina almennu ofurtolla.
Vegna þess að stykkjatollur eða útboðsgjald – sem er ígildi tolls – leggst á hvert blóm, borgar sig ekki fyrir innflytjendur að flytja inn ódýrari vöru. Þeir neyðast til að flytja inn lúxusvöru, annars margfaldar stykkjatollurinn innkaupsverðið.
Ein ástæðan fyrir umframeftirspurn eftir tollkvótum er að blómamarkaðurinn hefur farið stækkandi. Fólk hefur vaxandi áhuga á að skreyta híbýli sín með blómum. Vöxtur ferðaþjónustunnar þýðir margfalda eftirspurn frá hótelum og veitingahúsum á við það sem gerðist fyrir fáeinum árum. Tollkvótarnir hafa hins vegar staðið óbreyttir árum saman og innlend framleiðsla fær þannig hlutfallslega minnkandi samkeppni.
Innlent annar ekki markaðnum
Axel Sæland, stærsti blómabóndi landsins, hélt því fram í Fréttablaðinu fyrir skömmu að innlend framleiðsla annaði eftirspurn eftir afskornum blómum og innflutningur væri óþarfur. Þetta eru hrein ósannindi. Fáar tegundir eru ræktaðar á Íslandi í samanburði við nágrannalönd og reglulega vantar blóm af þeim tegundum, þannig að blómaverslanir fá lítið eða jafnvel ekkert af því sem þær panta frá framleiðendum. Fyrir flesta stóra „blómadaga“, til dæmis mæðradag, konudag og Valentínusardag, fá blómabúðir minna af blómum en þær vilja.
Við slíkar kringumstæður hefur landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra heimild til að gefa út tímabundinn tollkvóta á lægri tollum. Beiðnum innflytjenda um skortkvóta er hins vegar iðulega hafnað með þeim röksemdum að innlendir framleiðendur segist eiga til nóg af blómum. Þetta er augljóslega meingallað kerfi.
Hvað pottaplöntur til innanhússnota varðar, er sáralítil innlend framleiðsla á þeim; líklega helzt á jólastjörnum í lok árs.
Í hvers þágu eru ofurtollarnir?
Þetta er fráleit staða, hvort sem horft er til hagsmuna neytenda eða innflytjenda og seljenda blóma. Eins og kom fram í greinargerð nefndarinnar sem lagði til að tollar yrðu felldir niður (á öllu nema mat) geta innlendir framleiðendur haldið uppi verðinu á sinni vöru í skjóli tolla. Það gera blómaframleiðendur svikalaust.
Spyrja má í hvers þágu það sé að viðhalda ofurtollum á blóm. Röksemdir, sem hafa verið notaðar fyrir háum matartollum, eins og þeir eigi að tryggja fæðuöryggi, eiga augljóslega ekki við. Það er heldur ekki verið að vernda hefðbundinn íslenzkan landbúnað sem stendur á aldagömlum merg – blómaræktun er tiltölulega nýleg atvinnugrein.
Axel Sæland greip til loftslagsröksemdarinnar hér í blaðinu og benti á að kolefnisspor innfluttra blóma væri stærra en innlendra. Þessa röksemd er hægt að nota til að leggja ofurtolla á ótalmargar vörur, til dæmis innfluttan stein af ýmsu tagi, sem er mun þyngri í flutningi en blóm. Erum við ekki sjálfbær með grjót á Íslandi? Auðvitað er þetta gerviröksemd; það getur ekki verið að vara megi kosta hvað sem er af því að það sé svo loftslagsvænt að framleiða hana á Íslandi.
Það er jafnt í þágu neytenda og verzlunarinnar í landinu að breyta þessu arfavitlausa kerfi.
Skoðun

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta:
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar

Diplómanám er ekki nóg – tími til kominn að endurskoða aðgengi fatlaðs fólks að háskólanámi
Sigurður Hólmar Jóhannesson skrifar

Styrk stjórn gefur góðan árangur
Ásthildur Sturludóttir skrifar

„Bara ef það hentar mér“
Hákon Gunnarsson skrifar

Hvar værum við án þeirra? – Um mikilvægi Pólverja á Íslandi
Svandís Edda Halldórsdóttir skrifar

Fagleg forysta skiptir öllu - Af hverju eru ekki fleiri stjórnendur og leiðtogar að kveikja á perunni?
Sigurður Ragnarsson skrifar

Borgin græna og ábyrgðin gráa
Daði Freyr Ólafsson skrifar

Stalín á ekki roð í algrímið
Halldóra Mogensen skrifar

Sorrý, Andrés
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Er órökréttur skattafsláttur fyrir tekjuháa besta leiðin til að styðja barnafólk?
Ragna Sigurðardóttir skrifar

Gamalt vín á nýjum belgjum
Guðbjörg Sveinsdóttir skrifar

Mikilvægi skólasafna – meira en bókageymsla
Jónella Sigurjónsdóttir,Þórný Hlynsdóttir,Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Aukinn stuðningur við ESB og NATO
Pawel Bartoszek skrifar

Það á að hafa afleiðingar að níðast á varnarlausu fólki
Kristján Þórður Snæbjarnarson skrifar

Börnin borga fyrir hagræðinguna í Kópavogi
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir skrifar

Hvernig er veðrið þarna uppi?
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Að leita er að læra
Ragnar Sigurðsson skrifar

Vöxtur hugverkaiðnaðar á biðstofunni
Erla Tinna Stefánsdóttir,Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar

Viska: Sterkara stéttarfélag framtíðarinnar
Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar

Þetta er ekki raunverulegt réttlæti
Snorri Másson skrifar