Sundmaðurinn Anton Sveinn McKee keppti um helgina í þremur greinum, 50, 100 og 200 metra bringusundi á TYR Pro Swim Series mótinu sem fram fór í Bloomington í Indiana í Bandaríkjunum.
Anton Sveinn náði mjög góðum árangri á mótinu en hann synti sig inn á HM í 50 metra laug sem haldið verður í Gwangju í Suður-Kóreu í lok júní. Anton Sveinn synti á tímanum 27,73 sekúndum í 50 metra bringusundi en þar með bætti hann tíu ára gamalt Íslandsmet Jakobs Jóhanns Sveinssonar.
Anton hafnaði svo í þriðja sæti í 100 metra bringusundi en hann synti á tímanum 1:00,62 og var nálægt Íslandsmeti sínu í greininni. Blaðið var farið í prentun áður en hann synti 200 metrana á mótinu
Næsta verkefni Antons er þátttaka hans með íslenska liðinu á Smáþjóðleikunum sem haldnir verða í Svartfjallalandi um næstkomandi mánaðamót.
Anton Sveinn mun synda á HM í Suður-Kóreu
Hjörvar Ólafsson skrifar

Mest lesið

Vilja Gylfa Þór ekki til baka: „Enginn skilaréttur“
Íslenski boltinn

TikTok-stjarna ÍBV dælir út efni frá Eyjum
Íslenski boltinn



Villa mótmælir fyrirhugaðri breytingu
Enski boltinn



Leeds sló eigið stigamet
Enski boltinn

„Stoltur af leikmönnum og stuðningsmönnum“
Körfubolti

Fleiri fréttir
