

Af hverju ekki?
Það er hvimleitt þegar því er haldið að íslenskri þjóð að hún sé allt annarrar gerðar en aðrar þjóðir og það sem tíðkist erlendis geti engan veginn hentað hér. Rökin eru aldrei skýr, það eina sem er fullljóst er að einstaklingum er ekki treyst og því þurfi valdið að koma að ofan. Þannig er jafnvel talið stórhættulegt hér á landi að fólk geti keypt sér rauðvínsflösku í sömu verslun og það kaupir kótiletturnar eða mjólkina. Þetta gera Íslendingar þó í utanlandsferðum og þykir ósköp þægilegt. Ekki nema von að sífellt fleiri landsmenn spyrji af hverju þeir geti ekki gert þetta sama hér á landi.
Nýleg könnun Maskínu sýnir að fleiri eru hlynnt sölu bjórs og léttvíns í matvöruverslunum en andvíg. Aldrei hafa fleiri verið hlynnt sölu á bjór í matvöruverslunum en einmitt nú. Munurinn er svo sem ekki ýkja mikill. Rúmlega 44 prósent eru hlynnt sölu léttvíns í matvöruverslunum og um 42 prósent andvíg. Um 45 prósent eru hlynnt sölu á bjór og 41 prósent er andvígt.
Stórum hópi landsmanna finnst greinilega kominn tími til að hafna forsjárhyggju-hugsuninni sem hér hefur verið við lýði í þessum málum í alltof langan tíma. Andstæðingar þess að heimilt verði að selja vín og bjór í almennum verslunum hafa óspart vísað til þess að vilji þjóðarinnar sé skýr, hún vilji hafa þessi höft. Þessi nýja skoðanakönnun sýnir að vilji þjóðarinnar er nokkur annar en andstæðingarnir hafa talið hann vera. Könnunin sýnir líka að yngra fólk er líklegra en þeir sem eru sextugir og eldri til að vera fylgjandi því að bjór og léttvín verði til sölu í matvöruverslunum. Þetta unga fólk vill búa í opnu þjóðfélagi, án hafta, og kemur vitanlega ekki auga á rökin fyrir því að geta ekki gripið með sér rauðvínsflösku eða bjórkippu um leið og það kaupir í matinn. Slíkt frelsi býður engri hættu heim. Það er kominn tími til að stjórnmálamenn vippi sér yfir í nútímann.
Skoðun

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar