Töluverðar tafir eru nú á umferð í Ártúnsbrekku í austur eftir að bílar skullu saman. Um það bil tveir til þrír bílar lentu í árekstri.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu urðu engin slys á fólki og var engin þörf á aðgerðum af hálfu slökkviliðs.
Lögreglan er nú að störfum á vettvangi.
Umferðartafir upp Ártúnsbrekku vegna áreksturs
Sylvía Hall skrifar
