
Vinstri græn eiga leik
Samkvæmt reglugerð um útlendinga er t.d. enn, þrátt fyrir nýjustu breytingar, heimilt að senda börn til óöruggra landa. En alvarlegast er líklega að börn fá ekki sjálfstæða málsmeðferð. Tekin er afstaða til umsókna foreldra um vernd og síðan dregin sú ályktun að það sé barninu fyrir bestu að fylgja foreldrum. Krafan er að staða barna sé metin sérstaklega og þau fái þannig notið eigin mannréttinda.
Við þinglokasamning haustið 2017 gerðu formenn flokka samkomulag um að strax á nýju kjörtímabili yrði ráðist í endurskoðun útlendingalaga og framkvæmd þeirra. Meðal annars með tilliti til stöðu barna og fólks í viðkvæmri stöðu. Ríkisstjórnin hefur setið í eitt og hálft ár og ber því fulla ábyrgð á að árangur af þverpólitískri þingmannanefnd er enginn. Ekki er nóg með að þetta sleifarlag hafi verið látið viðgangast, heldur afgreiddi ríkisstjórnin nýtt frumvarp um útlendingalög þann 2. apríl, sem lagt var fram á Alþingi nokkrum dögum síðar. Í því er jafnvel gengið enn lengra í átt að ómannúðlegri stefnu og liðkað fyrir brottvísun barna. Auknir fjármunir og allur heimsins fagurgali duga því skammt ef meiningin er að herða enn á ómannúðlegri stefnu.
Ég geri mér grein fyrir því að hjónaband VG og Sjálfstæðisflokksins byggir frekar á hagkvæmnissjónarmiðum en ástríðu og eldheitri ást. En það þvingaði þau enginn í þetta samband og þau bera því fulla ábyrgð á þeim slæmu málamiðlunum sem í því eru gerð. VG á því tvo leiki í stöðunni: Að knýja fram manneskjulegar úrbætur á málefnum flóttafólks eða gera stefnu VG í málaflokkum fullkomlega marklausa.
Höfundur er formaður Samfylkingarinnar
Skoðun

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar

Dánaraðstoð á Bretlandseyjum í náinni framtíð
Bjarni Jónsson skrifar

„Vókið“ er dulbúin frestunarárátta
Gabríel Dagur Valgeirsson skrifar

Vókismi gagnrýndur frá vinstri
Andri Sigurðsson skrifar